Fyrirtæki

filmcentre

Kvikmyndamiðstöð Íslands

Icelandic Film Centre

Kvikmyndamiðstöðin tekur yfir öll verkefni Kvikmyndasjóðs, að undanskildum rekstri Kvikmyndasafnsins, en breytt fyrirkomulag miðar að því að auka skilvirkni starfseminnar, ekki síst hvað varðar meðferð umsókna og úthlutun styrkja til undirbúnings, framleiðslu og/eða dreifingar íslenskra kvikmynda.

Í stað þess að sérstök nefnd fjalli um og tilkynni niðurstöðu styrkveitinga einu sinni á ári verður hægt að leita hvenær sem er til Kvikmyndamiðstöðvarinnar með erindi sín og mun forstöðumaður hennar síðan taka endanlega ákvörðun um veitingu fjárstuðnings í samræmi við skilyrði þeirrar reglugerðar sem liggur til grundvallar slíkum úthlutunum.

Þann 1. janúar 2003 gengu í gildi ný lög frá Alþingi um fyrirkomulag á þáttöku hins opinbera í kvikmyndagerð á Íslandi. Markmið þeirra er að efla enn frekar þessa ört vaxandi starfsemi, sem hefur þá sérstöðu að vera hvort hvort tveggja í senn listgrein og atvinnuvegur, og stuðla almennt séð að viðgangi kvikmyndamenningar hér á landi.

Með nýju lögunum er Kvikmyndasjóður lagður niður í sinni fyrri mynd en í stað hans koma tvær sjálfstæðar stofnanir: Kvikmyndamiðstöð Íslands og Kvikmyndasafn Íslands. Eins og áður fer menntamálaráðherra með yfirstjórn kvikmyndamála en hefur nú sér til fulltingis sjö manna kvikmyndaráð sem ætlað er að veita stjórnvöldum ráðgjöf og gera tillögur um stefnu og markmið opinberra aðgerða á sviði kvikmyndalistar.

Ráðherrann skipar í kvikmyndaráð til þriggja ára í senn, formann og varaformann án tilnefningar, en hina fimm fulltrúana samkvæmt tilnefningum eftirtalinna aðila: Félags kvikmyndagerðarmanna, Framleiðendafélagsins-SÍK, Samtaka kvikmyndaleikstjóra, Félags kvikmyndahúsaeigenda og Bandalags íslenskra listamanna. Varamenn eru skipaðir með sama hætti. Sami einstaklingur verður ekki skipaður í sæti aðalmanns í kvikmyndaráði oftar en tvisvar samfleytt, eða í sex ár alls.

Róttækustu breytingar sem nýju lögin boða, og þær sem skipta mestu máli fyrir kvikmyndagerðarfólk landsins, felast í uppstokkun á fyrri starfsemi Kvikmyndasjóðs Íslands með tilkomu Kvikmyndamiðstöðvar Íslands.

Kvikmyndamiðstöðin tekur yfir öll verkefni Kvikmyndasjóðs, að undanskildum rekstri Kvikmyndasafnsins, en breytt fyrirkomulag miðar að því að auka skilvirkni starfseminnar, ekki síst hvað varðar meðferð umsókna og úthlutun styrkja til undirbúnings, framleiðslu og/eða dreifingar íslenskra kvikmynda. Í stað þess að sérstök nefnd fjalli um og tilkynni niðurstöðu styrkveitinga einu sinni á ári verður hægt að leita hvenær sem er til Kvikmyndamiðstöðvarinnar með erindi sín og mun forstöðumaður hennar síðan taka endanlega ákvörðun um veitingu fjárstuðnings í samræmi við skilyrði þeirrar reglugerðar sem liggur til grundvallar slíkum úthlutunum.

Kvikmyndasjóður starfar á vegum Kvikmyndamiðstöðvar Íslands.

Þjónustuflokkar fyrirtækis Tengiliður fyrirtækis
Stofnanir




litli

Þitt álit

skiptir okkur máli

Ábending, hrós eða kvörtun? Láttu okkur vita, hvað þér finnst.
Athugið: ekki er nauðsynlegt að gefa upp nafn, síma né netfang.

Til að fyrirbyggja ruslpóst:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica