Matís
Matís
Hlutafélagið Matís ohf. tók til starfa 1. janúar 2007. Í fyrirtækinu sameinuðust þrjár ríkisstofnanir sem unnið höfðu að matvælarannsóknum og þróun í tengslum við matvælaiðnað. Þetta voru Rannsóknastofnun fiskiðnaðarins, Matvælarannsóknir Keldnaholti og Rannsóknastofa Umhverfisstofnunar.
Forsaga málsins var sú að þann 6. júní 2005 skipaði forsætisráðherra starfshóp sem var falið að undirbúa sameiningu matvælarannsókna hér á landi í eina stofnun. Var starfshópnum falið að undirbúa frumvarp til laga um breytingar á lögum um rannsóknir í þágu atvinnuveganna þar sem m.a. væri kveðið á um rekstrarform og stjórn sameiginlegrar matvælarannsóknastofnunar, tengsl hennar við háskólana og aðkomu samtaka atvinnulífsins að stofnuninni. Í greinargerð með frumvarpi sem síðar varð að lögum um stofnun Matvælarannsókna hf. sagði að markmið stofnunarinnar skyldi felast í að efla alþjóðlega samkeppnishæfni íslenskrar matvælaframleiðslu, stuðla að hollustu og öryggi matvæla og styðja við vísindastarfsemi háskólastofnana og sinna samfélagslegum skyldum gagnvart einstökum atvinnugreinum.
| Þjónustuflokkar fyrirtækis |
Tengiliður fyrirtækis |
| Stofnanir |
|