Fyrirtæki

cp

Félag CP á Íslandi

CP félagið

Félag CP á Íslandi var formlega stofnað á fundi í sal Styrktarfélags lamaðra og fatlaðra þann 30. október 2001. Mæting á stofnfundinn fór fram úr björtustu vonum en ætla má að 60-70 manns hafi mætt á fundinn jafnt aðstandendur og fagaðilar. Á stofnfundinum voru lög félagsins samþykkt, stjórn kjörin og farið yfir möguleiki í starfseminni. Þá voru markmið félagsins kynnt og samþykkt. Félagsmenn eru nú rúmlega 200 talsins, jafnt fatlaðir, aðstandendur og fagaðilar.

Markmið CP félagsins

  • Standa fyrir fræðslu og kynningu á CP.
  • Safna upplýsingum um CP og miðla þeim.
  • Stuðla að faglegri umfjöllun um málefni er viðkoma CP.
  • Efla tengsl fatlaðra, aðstandenda, fagaðila og annarra áhugasamra um CP.
  • Stuðla að því að félagsmenn veiti hver öðrum aðstoð og stuðning eftir því sem við á.
  • Standa í hvívetna vörð um hagsmuni einstaklinga með CP.



litli
Þetta vefsvæði byggir á Eplica