Samgönguráðuneytið
Samgönguráðuneytið fer með yfirstjórn samgöngumála á Íslandi.
Málefni sem falla innan starfsviðs þess eru:
- Skipulag samgangna á landi, í lofti og á sjó.
- Vegir og vegagerð.
- Vitar, hafnir, Hafnabótasjóður og sjóvarnargarðar.
- Flug og flugvellir.
- Flug- og siglingaöryggismál.
- Siglingar.
- Eftirlit með skipum, Skipaskoðun ríkisins, skipamælingum, skráningu skipa, lögskráningu sjómanna og atvinnuréttindi þeirra
- Ferðaþjónustu; veitinga- og gististaðir, ferðaskrifstofur, gestastofur, umhverfismál og umferðarmiðstöðvar.
- Póst- og símamál svo og önnur fjarskiptamál.
- Rekstur flutningatækja á vegum ríkisins.
- Umferð og eftirlit með ökutækjum.