Sýslumannsembættin
Sýslumenn heyra í störfum sínum undir Dómsmálaráðuneytið. En þó heyrir hluti verkefna þeirra til stjórnsýslu fjármálaráðuneytis og heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytis.
Meðal þeirra verkefna sem sýslumenn sinna eru: rannsókn opinberra mála, lögreglustjórn, ákæruvald, almannavarnir, tollstjórn, innheimta opinberra gjalda, þinglýsingar, ýmsar leyfisveitingar. Það er því ljóst að um gríðarlega umfangsmikil verkefni er að ræða en tvennt hefur þó alla tíð - og er enn - verið meginhlutverk sýslumanna; innheimta á skatttekjum og löggæsla.