Ríki og sveitafélög

seltjarnarnes

Seltjarnarnes

Seltirningar státa sig af bæjarstæði þar sem náttúrufegurðin ríkir. Grótta er eitt helsta kennileiti Seltjarnarness og þangað ættu allir að gera sér ferð til að sjá síðsumarsólina hníga til viðar. Frá Seltjarnarnesi er líka fagurt útsýni til fjalla til norðurs allt frá Esjunni yfir að Snæfellsjökli með sínum leyndardómum.

Á Nesinu er atvinnulíf í blóma, fjöldi smærri fyrirtækja er þar til að veita sína þjónustu. Menningunni er líka gert hátt undir höfði á Nesinu. Nesstofa, staðsett í yfir 200 ára gömlu steinhúsi hýsir Lækningaminjasafnið. Í Gróttu er einnig rekið fræðasetur þar sem nemendur í leik- og grunnskólum bæjarins gefst færi á að kynna sér náttúrufar og dýralíf.

Þjónustuflokkar fyrirtækis Tengiliður fyrirtækis
Ríki og sveitafélög




litli

Þitt álit

skiptir okkur máli

Ábending, hrós eða kvörtun? Láttu okkur vita, hvað þér finnst.
Athugið: ekki er nauðsynlegt að gefa upp nafn, síma né netfang.

Til að fyrirbyggja ruslpóst:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica