Skólar

hlidarskoli

Hlíðaskóli

Hlíðaskóli við Hamrahlíð er heildstæður grunnskóli (1. - 10. bekkur). Þar stunda á sjötta hundrað nemenda nám í 27 bekkjardeildum. Skólastarf í Hlíðahverfi hófst árið 1954 með kennslu 7 - 8 ára barna í húsnæði leikskólans v/Eskihlíð, sem þá var útibú frá Austurbæjarskóla. Ári seinna fékk skólinn nafnið Eskihlíðarskóli og skólastjóri hans var Magnús Sigurðsson. Hafist var handa um byggingu nýs skólahúsnæðis við Hamrahlíð og flutt í fyrsta áfanga þess árið 1960. Skólinn fékk þá nafnið Hlíðaskóli. Sigvaldi Tordarson arkitekt teiknaði skólann sem átti í upphafi að verða stærsti skóli landsins og rúma 1700 - 1800 nemendur
Hlíðaskóli við Hamrahlíð er heildstæður grunnskóli (1. - 10. bekkur). Þar stunda á sjötta hundrað nemenda nám í 27 bekkjardeildum. Skólastarf í Hlíðahverfi hófst árið 1954 með kennslu 7 - 8 ára barna í húsnæði leikskólans v/Eskihlíð, sem þá var útibú frá Austurbæjarskóla. Ári seinna fékk skólinn nafnið Eskihlíðarskóli og skólastjóri hans var Magnús Sigurðsson. Hafist var handa um byggingu nýs skólahúsnæðis við Hamrahlíð og flutt í fyrsta áfanga þess árið 1960. Skólinn fékk þá nafnið Hlíðaskóli. Sigvaldi Tordarson arkitekt teiknaði skólann sem átti í upphafi að verða stærsti skóli landsins og rúma 1700 - 1800 nemendur. Magnús Sigurðsson gegndi störfum fram til ársins 1969 og þá tók Ásgeir Guðmundsson við. Hann var skólastjóri til ársins 1980 ef frá eru talin árin 1972-74 er Áslaug Friðriksdóttir gegndi starfinu. Núverandi skólastjóri er Árni Magnússon



litli
Þetta vefsvæði byggir á Eplica