Fjölskyldu- og húsdýragarðurinn
Húsdýragarðurinn var opnaður með viðhöfn 19. maí 1990.
Frumkvöðlar að gerð Fjölskyldu- og húsdýragarðs voru þeir Davíð Oddsson, þáverandi borgarstjóri, og Þórður Þorbjarnarson, þáverandi borgarverkfræðingur. Það kom hins vegar í hlut Markúsar Arnar Antonssonar, fyrrverandi borgarstjóra, að taka fyrstu skóflustunguna að Fjölskyldugarðinum 24. ágúst 1991. Tæpum tveimur árum síðar, 24. júní 1993, var garðurinn formlega opnaður af borgarstjóra og sameinaður Húsdýragarðinum.
Í starfssemi Húsdýragarðsins er reynt að vera til fyrirmyndar og í vaxtarbroddi í dýravernd. Gert er ráð fyrir rúmlega tuttugu dýrategundum og er markmiðið að gera þeim dýrum sem lifa á Íslandi góð skil en þó með sérstaka áherslu á húsdýrin. Stefnt er að því að hafa fá dýr af hverri tegund og leitast við að sýna afbrigði, litbrigði, bæði kynin og afkvæmi þeirra. Garðurinn hefur umsjón með Þerney í Kollafirði og er eyjan nýtt sem orlofsstaður fyrir dýr garðsins. Stefnt er að því að þau dýr sem að á annað borð eiga heimangengt fái a.m.k. jafnlangt sumarfrí og starfsmenn.
Markmið með byggingu Fjölskyldugarðsins er að veita fjölskyldufólki fjölbreytta þjónustu og aðstöðu til að verja saman tómstundum sínum. Hugtök sem stuðst er við í uppbyggingu garðisns eru sjá, læra, vera og gera. Í Fjölskyldugarðinum er lögð mikil áhersla á umhverfismál og reynt eftir fremsta megni að notast við umhverfis-vænan búnað innan svæðisins, s.s. rafmagnsbíla og hjól. Garðurinn er fullur af ýmisskonar leiktækjum sem flest miðast við að gestirnir þurfi að gera sem mest sjálfir ásamt því að vera valin með öll aldurstig í huga.