Vegagerðin
Það er hlutverk Vegagerðarinnar að sjá samfélaginu fyrir vegakerfi í samræmi við þarfir þess og veita þjónustu, sem miði að greiðri og öruggri umferð. Með gæðin að leiðarljósi ætlar Vegagerðin að ná meginmarkmiðum sínum sem eru: Greið umferð um vegi landsins Mikið umferðaröryggi Góð þjónusta Góð sambúð við umhverfi og íbúa.
Til að sinna hlutverkinu á sem árangursríkastan hátt ætlar Vegagerðin að vinna að auknum gæðum í starfsemi sinni miðað við þarfir vegfarandans og með tilliti til umhverfis og öryggis. Stjórnendur Vegagerðarinnar munu hafa forystu um gæðamál og virkja og hvetja samstarfsmenn til að: Vinna verkin rétt frá upphafi og tryggja gæði áætlana, framkvæmda og þjónustu ná réttum gæðum í allri sinni starfsemi með sem minnstum kostnaði skilgreina gæðakröfur til mannvirkja og starfseminnar sem mótast af þörfum vegfarenda og samfélags skilgreina kröfur gagnvart birgjum, þ.á.m. verktökum og ráðgjöfum, og vinna með þeim að framförum í gæðamálum stilla saman gæðum vega og umhverfi þannig að vegagerð sé í sátt við náttúruna og vegir falli að þörfum og öryggi vegfarenda. miðla upplýsingum sem eru öruggar og skiljanlegar til almennings og stjórnvalda stunda símenntun og miðla þekkingar til annarra starfsmanna Vegagerðin mun starfrækja virkt gæðakerfi, sem tekur mið af ISO 9001 og beita aðferðum gæðastjórnunar til að ná árangri.
| Þjónustuflokkar fyrirtækis |
Tengiliður fyrirtækis |
| Stofnanir |
|