Glöggt er gests augað
Við tökum að okkur gæðaeftirlit og stjórnun verkefna
Þegar unnið er að stórum verkefnum, hugsanlega með mörgum þjónustuaðilum, er oft ómetanlegt að hafa hlutlausan aðila sem getur haft auga með því að verkefnið fari rétt fram og að gæði aðkeyptrar vinnu séu eins og til er ætlast.
Hugsmiðjan getur tekið að sér að gæta hagsmuna verkkaupa og sjá um gæðaeftirlit af margvíslegu tagi, svo sem:
- Úttekt á viðmóts- og útlitstillögum
- Ráðgjöf og/eða rýni á HTML og CSS kóða
- Öryggisúttektir
- Álagsprófanir kerfa
Með því að fá Hugsmiðjuna til að sinna ráðgjöf og gæðaúttektum geta viðskiptavinir notið góðs af reynslu okkar og þekkingu - jafnvel þótt ætlunin sé að aðrir þjónustuaðilar sjái um framkvæmd verkefna.
Fyrirkomulag gæðaeftirlitsins tekur mið af hverju verkefni fyrir sig, en getur verið allt frá því að við förum yfir hugmyndir að útliti og virkni til þess að við tökum fullan þátt í starfi stýrihóps viðkomandi verkefnis.
