Boltanum rúllað af stað
Hugmyndir mótaðar, veftré sett upp og umfang verkefnisins skilgreint
Fyrsta skrefið í smíði nýs vefsvæðis er greiningarvinna þar sem unnið í náinni samvinnu við viðskiptavini og hugmyndir þeirra um hið nýja vefsvæði eru færðar í mótað form og verkefnið skilgreint.
Á greiningarstiginu skýrist hvort þörf er á viðbótareiningum við Eplica kerfið, eða hvort grunnútgáfa þess dugir til að sinna óskum viðskiptavinarins.
Með því að vanda til greiningarvinnu minnka stórlega líkurnar á að ófyrirséð aukaverk skjóti upp kollinum þegar líður á vinnsluferlið. Því er sú vinna sem lögð er í skipulagningu verkefna ávísun á hnökralaust framhald.
Skjölun aðlöguð að eðli verkefna
Umfang skjölunar fer eftir stærð verkefna og því hversu flókin þau eru, til dæmis ef um er að ræða marga þjónustuaðila sem koma að sama verkefni.
Fyrir einföld vefsvæði er ekki endilega þörf á mjög ítarlegri skjölun, en í stærri verkefnum getur verið æskilegt að teikna upp allar skjámyndir og skjala nákvæmlega hvernig einstakar virknieiningar eiga að vinna saman.
