Örugg vefhýsing

Við bjóðum vefnum þínum gott og öruggt heimili

Hýsingarumhverfi Hugsmiðjunnar byggir á öflugum vélbúnaði í sérstökum vélarsal þar sem vel er hugað að réttu raka- og hitastigi svo vélbúnaðurinn endist sem lengst og vinni sem hraðast.

Vefhýsing fyrir algenga stærð af vefjum kostar 6.500 kr. á mánuði án vsk. og er þá miðað við allt að 250 MB skráasvæði og 20 MB gagnagrunn. DNS hýsing kostar 500 kr. á mánuði. Einnig býður Hugsmiðjan tölvupóstþjónustu í samstarfi við Basis ehf.

Hýsingarumhverfi Hugsmiðjunnar

Hýsingarumhverfi Hugsmiðjunnar byggir á öflugum vélbúnaði og eldvörðum vélarsal þar sem einnig er hugað að réttu raka- og hitastigi svo vélbúnaðurinn endist sem lengst og vinni sem hraðast.

Mjög öflugt eftirlitskerfi er innan vélarsals og ef upp koma tilvik, sem benda til þess að eitthvað sé að, er umsvifalaust kallað út fólk til að kanna það betur.

Allur net og tölvubúnaður í vélarsal er tengdur varaafli og traustri ljósleiðaratengingu við netið.

Afritunartaka er á hverjum sólarhring, og afrit eru tekin út úr húsi.

Fjölbreyttir möguleikar Eplica lausnarinnar

Hugbúnaðarumhverfi hýsingar hjá Hugsmiðjunni er Java umhverfi, með MySQL gagnagrunn, í Red Hat Enterprise Linux kerfi.




litli
Þetta vefsvæði byggir á Eplica