thjonusta_undirstada

Byggt á Open Source

Vinna sem byggir á traustum undirstöðum

Undanfarin ár hafa lausnir byggðar á opnum hugbúnaðargrunni (Open Source) fest sig í sessi sem skynsamlegur og áreiðanlegur valkostur. Einkennandi fyrir best þekktu Open Source lausnir er að þróun þeirra er byggð á þekkingu gríðarstórs hóps og brugðist er við vandamálum hratt og örugglega.


Í Open Source heiminum er að finna margar af mest notuðu hugbúnaðarlausnum heimsins, til dæmis Linux stýrikerfið, Apache vefþjóninn, Apache Tomcat, Java forritunarmálið, gagnagrunnana MySQL og PostgreSQL, o.s.frv.

Hjá Hugsmiðjunni er mikil reynsla af notkun allra ofantalinna lausna og við getum veitt ráðgjöf um möguleikana sem í þeim felast.

Öguð vinnubrögð og sveigjanlegar lausnir

Í forritun okkar byggjum við á N-Tier Model-View-Controller skiptingu og J2EE aðferðafræðinni. Til dæmis er Eplica kerfið alfarið forritað í Java eftir J2EE aðferðafræði.

Þrátt fyrir að við kjósum yfirleitt að notast við Open Source lausnir í okkar vinnu gætum við þess að einskorða okkur ekki við ákveðin stýrikerfi eða gagnagrunna. Þannig má keyra Eplica kerfið í öllum Linux dreifingum, Windows XP, Windows 2000 Server, Windows 2003 Server, IBM iSeries og á Apple.

Þjónusta, uppsetning og rekstur

Við getum einnig tekið að okkur að þjónusta margs konar Open Source hugbúnað, til dæmis ýmis Wiki, CRM kerfi og margt fleira.

Í slíkri þjónustu felst meðal annars uppsetning á hugbúnaðinum, kennsla, rekstur og hugsanleg forritun viðbóta. Hafið endilega samband til að ræða hvers konar þjónusta ykkur hentar.





litli

Þitt álit

skiptir okkur máli

Ábending, hrós eða kvörtun? Láttu okkur vita, hvað þér finnst.
Athugið: ekki er nauðsynlegt að gefa upp nafn, síma né netfang.

Til að fyrirbyggja ruslpóst:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica