reynsla_reynslaogradgjof

Alhliða sérfræðiþjónusta

Hæfileikaríkir starfsmenn og víðtæk sérfræðiþekking á okkar sviðum

Hugsmiðjan getur tekið að sér hvers kyns ráðgjafarverkefni á sviði netsamskipta og hugbúnaðarhönnunar almennt. Við búum yfir einstakri reynslu varðandi aðgengilega hönnun og hugbúnaðargerð.


Viðmót og útlit

Meðal starfsmanna okkar eru hæfileikaríkir útlitshönnuðir og sérfræðingar í hvers kyns notendaviðmótum. Við leggjum áherslu á fallega og áhrifaríka hönnun þar sem notendur eru hafðir í fyrirrúmi. Hönnuðir okkar vinna einnig með öðrum fyrirtækjum við að bæta viðmót þeirra lausna og kerfa; bæði veflausna og hefðbundara forritaumhverfis.

Open Source lausnir

Hugbúnaðarþróun okkar byggir að miklu leyti á Open Source lausnum og við búum yfir víðtækri reynslu af lausnum á borð við Linux, Apache, Apache Tomcat, MySQL og mörgum fleiri.

Öryggismál

Þegar gögn eru send yfir Internetið er mikilvægt að huga að öryggismálum. Við búum yfir vel menntuðum sérfræðingum og þekkingu á þeim viðfangsefnum sem gæta þarf að.

Gæðaeftirlit

Við getum tekið að okkur gæðaúttektir og aðstoðað við eftirlit verkefna sem unnin eru af öðrum þjónustuaðilum. Fjölbreytt reynsla okkar gerir Hugsmiðjuna að ákjósanlegum samstarfsaðila og getur auðveldað verkkaupum alla þeirra vinnu.


Óþrjótandi möguleikar

Ofantalin ráðgjafarsvið gefa hugmynd um þá möguleika sem felast í samstarfi við Hugsmiðjuna. Við hvetjum áhugasama til að hafa samband og falast eftir kröftum okkar og þekkingu.




litli

Þitt álit

skiptir okkur máli

Ábending, hrós eða kvörtun? Láttu okkur vita, hvað þér finnst.
Athugið: ekki er nauðsynlegt að gefa upp nafn, síma né netfang.

Til að fyrirbyggja ruslpóst:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica