Sérsmíði eftir þörfum
Engir tveir viðskiptavinir hafa nákvæmlega sömu þarfir
Eplica kerfið hefur nú verið í þróun í yfir 5 ár og til er orðinn töluverður fjöldi viðbótareininga sem getur sinnt þeim sérþörfum sem upp kunna að koma.
Engu að síður er oft þörf á forritun sérlausna. Þar búum við að öflugum hópi forritara með víðtæka þekkingu á sínum sérsviðum.
Lögð er áhersla á að sérlausnir séu tengdar Eplica kerfinu þannig að notendur vinni í sams konar viðmóti og fyrir aðra hluta vefsins.
Algeng sérforritun eru tengingar og samskipti við önnur kerfi viðskiptavinar, til dæmis kerfi tengd margs konar gagnagrunnum eða lausnum á borð við Lotus Notes.
Auk tiltækra pakkalausna búum við yfir reynslu í samþættingu hugbúnaðarkerfa af margvíslegu tagi, ásamt hvers kyns öryggisúttektum.
Nánari upplýsingar um þá möguleika sem standa til boða er að finna á upplýsingavef Eplica.

