Útlit og virkni tengd saman

Í uppsetningunni lifnar vefurinn við og efnisinnsetning getur hafist

Uppsetningarferlið felur í sér að ofið útlit er tengt við einingar Eplica kerfisins og einingunum er raðað saman á uppsett þróunarvefsvæði. Að uppsetningu lokinni er vefurinn tilbúinn í þeirri mynd sem hann verður, en án endanlegs innihalds.

Þar með fær viðskiptavinurinn aðgang að vefnum og getur hafist handa við innsetningu efnis.


Að lokinni stuttri kennslu á kerfið eru notendur færir um að hefjast handa, enda er viðmót Eplica fyrir efnisinnsetningu kunnuglegt notendum úr dæmigerðum ritvinnsluforritum.

Ef um er að ræða einhverja sérforritaða virkni bætist hún venjulega við í framhaldi af uppsetningunni.

Notandinn með frá upphafi

Þar sem útlit og virkni eru aðskilin í Eplica kerfinu er hægt að bjóða viðskiptavinum að setja upp vefsvæði með einfölduðu útliti þannig að þeir geti strax hafist handa við innsetningu efnis. Hið endanlega útlit bætist þá við um leið og það er fullunnið.

Þessi leið getur átt við ef þörf er á að hefja innsetningu áður en samþykkt útlit liggur fyrir, til dæmis ef um er að ræða mikið magn efnis. Sé þessi leið farin getur viðskiptavinur í raun byrjað að vinna með kerfið svo gott sem samhliða því að gengið er frá samningum.

Flestir viðskiptavinir kjósa þó að bíða með innsetningu þar til hið endanlega útlit hefur verið mótað.

Mikill sveigjanleiki

Fljótlegt er að setja upp nýtt vefsvæði í Eplica kerfinu og vefir geta ýmist verið hýstir á vefþjónum Hugsmiðjunnar eða hjá hvaða þjónustuaðila sem er, allt eftir óskum viðskiptavina.

Flestir vefir settir upp af Hugsmiðjunni byggja á Java umhverfi og MySQL gagnagrunni í Red Hat Enterprise Linux kerfi.

Hafi viðskiptavinir óskir um slíkt keyrir Eplica lausnin í mun fleiri umhverfum; öllum Linux dreifingum, Windows XP, Windows 2000 Server, Windows 2003 Server og á Apple. Eins getur Eplica keyrt með öðrum gagnagrunnum, t.d. Microsoft SQL Server, Oracle eða PostgreSQL.




litli
Þetta vefsvæði byggir á Eplica