Gæði undir fögru skinni
Vefsvæði eru lykilþáttur í ímynd fyrirtækja og mikilvægt að vefhönnun tryggi samspil fallegs útlits og notagildis
Vefhönnun snýst um fleira en útlitið, áferðarfallegur vefur er gagnslaus ef viðskiptavinir geta ekki nýtt sér hann vegna slælegrar viðmótshönnunar. Í allri okkar hönnun leggjum við metnað í að sameina hvort tveggja; viðmót sem er skýrt og skilvirkt og vandað útlit sem styrkir ímynd viðskiptavinarins.
Við kunnum okkar fag
Það er styrkur Hugsmiðjunnar að búa yfir hönnuðum sem geta sameinað annars vegar fagurfræði og hins vegar upplýsingahögun og viðmótshönnun.
Ýmist hönnum við sjálfir útlit og viðmót byggt á öðru ímyndarefni, eða vinnum það í samvinnu við aðra hönnuði viðkomandi viðskiptavinar.
Þegar okkar hönnuðir leiða útlitsvinnuna er tryggt að sérþekking okkar nýtist í öllu ferlinu og að útlitshönnunin samræmist bæði sérkröfum vefbirtingar og þeim möguleikum sem Eplica kerfið býður upp á.
Dæmin tala sínu máli
Eftirfarandi eru nokkur sýnishorn af nýlegum verkefnum okkar.
Ekki láta þér nægja að horfa bara á útlitið, við hvetjum þig til að opna vefsvæðin og prófa að nota þau - til þess er hönnunin ætluð.



