Allar gerðir vefsvæða
Hátt í 500 (alvöru) vefir fyrir ánægða viðskiptavini
Við fullyrðum að það sé vandfundið íslenskt fyrirtæki sem hefur meiri reynslu af vefverkefnum en þá sem starfsmenn Hugsmiðjunnar búa yfir.
Vefverkefni okkar eru af margvíslegum toga, frá einföldum kynningarvefjum til nokkurra af stærstu vefsvæðum landsins. Við höfum sett upp vel á fjórða hundrað vefsvæða fyrir viðskiptavini okkar.
Flestallir vefir sem við vinnum byggja á Eplica kerfinu, sem er bæði öflugt og einfalt í notkun. Við höfum líka tekið þátt í mörgum verkefnum sem unnin eru í öðrum vefkerfum - bæði með íslenskum og erlendum samstarfsaðilum.
Við upphaf verkefna er það okkar fyrsta skref að fara yfir hugmyndir og vangaveltur viðskiptavina með opnum huga - enda eru viðskiptavinirnir sérfræðingar á sínu sviði, líkt og við erum á okkar.
Vinnsluferlið tekur mið af hverju verkefni fyrir sig, en dæmigert ferli skiptist í eftirfarandi þætti:
Og eftir þörfum:
Stórir vefir, smáir vefir og allir hinir...
Hugsmiðjan hefur bæði unnið vefi fyrir nokkra af stærstu rekstraraðilum landsins og fyrir einstaklinga og minni samtök.
Listinn yfir viðskiptavini okkar gefur hugmynd um fjölbreytnina.
Við tökum vel á móti nýjum viðskiptavinum, jafnt stórum sem smáum, enda er þessi fjölbreytileiki verkefna stór þáttur af því sem við starfsmennirnir njótum við vinnunna okkar.

