Vinalegt og gott viðmót
Þegar við hönnum notendaviðmót vöndum við bæði útlit og notagildi
Hönnun notendaviðmóts tilheyra þættir á borð við útlit og framsetningu, skipulagningu verkflæðis og fleira.
Vel heppnað viðmót skýrir sig sjálft og styður notendur í því að leysa sín verkefni hratt og örugglega.
Þekking okkar á sviði viðmótshönnunar einskorðast hvorki við Eplica kerfið né veflausnir, heldur getum við veitt ráðgjöf í öllum þeim tilvikum þar sem notendur eiga í hlut.
Fallegt og nytsamlegt útlit
Við gleymum heldur ekki útlitsþættinum. Hönnuðir okkar hafa ólíka stíla sem henta mismunandi viðskiptavinum, en verkefni hönnuð af okkur eiga það sameiginlegt að vera smekkleg og falleg.
Sem dæmi um vel heppnuð verkefni okkar á þessu sviði má nefna:
- Bókunarvél Icelandair fyrir pakkaferðir: Endurskipulagning flæðis og alls viðmóts
- Marel MPS: Hönnun á viðmóti hugbúnaðar og snertiskjáa
- Útlitshönnun vefsvæða
Notendur í öndvegi
Í hönnun okkar leggjum við áherslu á notendur og mótum lausnir út frá þeim. Við spyrjum því ekki "Hvað á kerfið að gera?" heldur "Hvernig nýta notendur kerfið?"
Meðal þess sem fellur undir hatt notendamiðaðrar hönnunar og við getum veitt ráðgjöf um er:
- Skipulag og útlit notendaviðmóts
- Aðlögun viðmóts að ólíkum miðlum
- Aðgerðagreining
- Upplýsingahögun (e. information architecture)
- Notagildi (e. usability)
- Aðgengileiki (e. accessibility)
- Þjálar Javascript/AJAX lausnir
Ekki einblínt á tæknina
Við leggjum metnað okkar í hugsa tæknilegar lausnir út frá því hvernig þær nýtast notendum og að öll okkar hönnun beri þess skýr merki.
Við getum tekið þátt í viðmótshönnun frá upphafi verkefna, eða komið að úttekt og rýni á viðmóti lausna á öðrum stigum. Reynslan hefur sýnt að besta niðurstaðan fæst þegar hugað er að viðmótshönnun samfellt í gegnum allt verkferlið.
Samstarf við Hugsmiðjuna er því sterkur leikur fyrir fyrirtæki sem hafa þörf fyrir öfluga málsvara notenda í vinnsluferlum eða vilja bæta viðmót lausna sem þegar eru í rekstri.

