Traust og öryggi á báða bóga
Við erum reyndur samstarfsaðili í alls kyns öryggismálum
Internetið býður upp á þægilega leið til að tengja saman ólík kerfi og veita notendum aðgang að margvíslegum gögnum.
Þegar samskipti færast úr einangruðum kerfum yfir í vefþjónustur og veflægar lausnir er mikilvægt að huga sérlega vel að öryggi.
Öryggismál fela meðal annars í sér að tryggja að:
- Sendandi og móttakari upplýsinga séu þeir sem þeir segjast vera
- Óviðkomandi geti ekki lesið eða átt við gögn sem send eru milli aðila
- Greiðslur fyrir þjónustu fari örugga leið
- Ekki sé neinn aðgangur að öðrum gögnum en réttindi notenda leyfa
Fjölbreyttar leiðir
Meðal tæknilausna sem notaðar eru í öryggismálum og starfsmenn Hugsmiðjunar þekkja vel til má nefna:
- Dulkóðun gagna
- Rafræn skilríki
- Rafræn auðkenning
- Öruggar greiðslur
- Öryggisúttektir vefþjónusta
Reyndir og öruggir ráðgjafar
Við höfum víðtæka reynslu af því að setja upp örugg vefsamskipti af ýmsu tagi, meðal annars í gegnum vefverslanakerfi sem unnið er í samstarfi við Skýrr. Það vefverslanakerfi hefur til dæmis verið notað við sölu á rafrænum skjölum þar sem ekki á sér stað neinn áþreifanlegur tilflutningur. Skýrr leggur Hugsmiðjunni einnig til öryggislykla og greiðslumiðlunarkerfi.
Hugsmiðjan er reyndur samstarfsaðili í öryggismálum hvers konar og býr yfir víðtækri sérfræðiþekkingu á þessu sviði.
Við hjálpum þér að tryggja gögnin þín.

