Öllum aðgengilegt

Aðgengileg hönnun snýst um að gera upplýsingar skýrar og skiljanlegar fyrir alla notendur

Meðal kosta þess að huga að aðgengishönnun eru:

  • Uppbygging vefsvæða verður skýr og skilmerkileg
  • Vefsvæði verða aðgengileg t.d. sjónskertum og blindum
  • Sölu- og skráningarferli verða einföld og þægileg.
  • Ná má til stærri notendahóps en ella
  • Leitarvélum er auðveldað að finna upplýsingar og skrá þær rétt
  • Nýta má möguleika nýjustu tækni án þess að það bitni á notendum eldri búnaðar
  • Aðgengileg hönnun er forsenda þess að hægt sé að nýta upplýsingar í t.d. lófatölvum og öðrum sérlausnum

Hugsmiðjan í fararbroddi

Sífellt færist í vöxt skilningur á því að aðgengileiki vefsvæða er hluti af þeirri samfélagslegu kurteisi sem ætlast er til af fyrirtækjum og stofnunum.

Við leggjum metnað okkar í að vera í fararbroddi íslenskra upplýsingatæknifyrirtækja þegar kemur að aðgengilegri hönnun vefsvæða. Sem dæmi má nefna að meirihluti þeirra vefsvæða sem hlotið hafa aðgengisvottun Sjá og ÖBÍ í Forgangi II er unninn af Hugsmiðjunni.

Meðal verkefna sem tengjast aðgengismálum má nefna þjónustuna Mínar Stillingar, sem er einsdæmi á heimsvísu. Hún er hönnuð og rekin af Hugsmiðjunni.

Gögn eru birt til þess að nýtast

Upplýsingar og gögn eru birt á vefsvæðum til þess að hægt sé að nota þau.

Sérfræðiþekking okkar hjálpar þér að tryggja að þær upplýsingar sem þú vilt koma á framfæri verði aðgengilegar öllum, ekki bara sumum.




litli

Þitt álit

skiptir okkur máli

Ábending, hrós eða kvörtun? Láttu okkur vita, hvað þér finnst.
Athugið: ekki er nauðsynlegt að gefa upp nafn, síma né netfang.

Til að fyrirbyggja ruslpóst:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica