Sjálfbjarga viðskiptavinir

Okkar kennsla og þjálfun er sérsniðin að þörfum hvers notanda

Hjá Hugsmiðjunni leggjum við mikla áherslu á að gera þá notendur sem hafa umsjón með vefsvæðum sjálfbjarga í Eplica kerfinu. Það er gert með því að bjóða þeim upp á kennslu hér hjá okkur sem tekur mið af þörfum viðkomandi notanda.


Flestallir sem vinna með efnisinnsetningu í kerfið kjósa að koma til okkar í stutta grunnkennslu. Þá sest þjónustufulltrúi niður með notendum og sýnir þeim aðalatriðin í uppbyggingu viðmótsins. Þannig er þeim gert kleift að læra á kerfið með því að fikra sig áfram.

Þeim sem vinna með síðueiningar, útlitsbreytingar og aðra uppsetningarmöguleika Eplica kerfisins stendur til boða ítarlegri kennsla sem tekur mið af verkefnum þeirra og fyrri reynslu. Við bjóðum einnig upp á kennslu í að forrita einingar fyrir Eplica kerfið, kjósi menn slíkt.

Við hjálpum viðskiptavinum að hjálpa sér sjálfir

Að auki stendur til boða að notendur sitji hluta úr degi hjá okkur og vinni sjálfir að efnisinnsetningu með þjónustuborðið innan seilingar ef spurningar koma upp.

Þegar viðskiptavinur sem er með vefi frá okkur ræður nýja starfsmenn til að vinna við vefumsjón í Eplica kerfinu, er auðsótt mál að bóka fyrir þá kennslu til að koma þeim í gang.




litli

Þitt álit

skiptir okkur máli

Ábending, hrós eða kvörtun? Láttu okkur vita, hvað þér finnst.
Athugið: ekki er nauðsynlegt að gefa upp nafn, síma né netfang.

Til að fyrirbyggja ruslpóst:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica