Til þjónustu reiðubúin

Við búum yfir öflugu þjónustuborði sem er til þjónustu reiðubúið fyrir viðskiptavini

Hugsmiðjan er með öfluga þjónustudeild sem svarar óskum viðskiptavina og sinnir ábendingum um vandamál sem upp kunna að koma.

Þjónustudeild Hugsmiðjunnar er líklega sá hópur sem hefur mesta reynslu allra af notkun Eplica kerfisins, enda sér deildin um uppsetningu allra okkar vefja og þekkir þá því út og inn.


Athugasemdum komið í réttan farveg

Þjónustudeild veitir leiðbeiningar í síma eða tölvupósti, auk þess að framkvæma sjálf smærri lagfæringar og breytingar sé þess óskað. Ef um er að ræða viðameiri verk kemur þjónustudeildin verkbeiðnum í réttan farveg.

Við leggjum áherslu á að sinna beiðnum hratt og örugglega - og helst þannig að notendur verði í framhaldinu sjálfbjarga þegar leysa þarf sams konar viðfangsefni.

Æfingin skapar meistarann

Besta leiðin til að læra á nýtt kerfi er að prófa sig áfram og eftir stutta kennslu eru notendur færir um að prófa sig áfram í Eplica umsjónarkerfinu.

Það er einn af mörgum kostum Eplica kerfisins að það er næstum ómögulegt að týna efni varanlega. Ef eitthvað virðist hafa týnst er þjónustudeildin fljót að finna hvað hefur misfarist í skráningu efnisins.

Opið alla virka daga

Þjónustuborðið er opið alla virka daga milli klukkan 9:00 og 17:00.

Sími þjónustudeildar er 5 500 900 og netfangið thjonusta@hugsmidjan.is.




litli

Þitt álit

skiptir okkur máli

Ábending, hrós eða kvörtun? Láttu okkur vita, hvað þér finnst.
Athugið: ekki er nauðsynlegt að gefa upp nafn, síma né netfang.

Til að fyrirbyggja ruslpóst:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica