Vörur Hugsmiðjunnar
Vörusafn okkar inniheldur þaulreyndar lausnir, bæði frumunnar og endursöluvörur
Stærstur hluti lausnasafns okkar tilheyrir Eplica kerfinu, en við bjóðum einnig fleiri sjálfstæðar lausnir.
Þar má nefna Vitka, sem er gríðarlega öflug innrivefslausn sem sameinar frelsi wiki hugmyndafræðinnar kröfum nútíma fyrirtækja og stofnana.
|
Eplica lausnirHugsmiðjan hefur unnið að þróun Eplica kerfisins síðan 2001 og meðal lausna sem þróaðar hafa verið í kerfinu má nefna: Vefumsjónarkerfi, verslunarkerfi, samskiptakerfi og ýmsar samþættingarlausnir. |
|
Vitki samvinnukerfiVitki er spennandi samvinnulausn sem byggir á wiki hugmyndafræði. Hann á sérlega vel við í þekkingarfyrirtækjum þar sem starfsmenn eru hvattir til að skrá sjálfir og móta þá þekkingu sem býr innan fyrirtækisins. |
|
Stillingar.isHugsmiðjan þróar og rekur aðgengisþjónustuna Stillingar.is sem er einsdæmi í heiminum og hefur hlotið mjög góðar undirtektir ýmissa fagaðila. |
Aðrar vörur
Hugsmiðjan býður einnig margs konar vörur í endursölu, til dæmis verkefnakerfið Jira og fjölnotendalausnina Crowd frá Atlassian Software.
Hafðu endilega samband ef eitthvað af ofantöldu vekur áhuga þinn, eða ef þú ert að skoða möguleikana á að kaupa lausn erlendis frá. Hver veit nema það sé lausn sem við höfum í huga að bjóða og þjónusta.
