Eplica vefumsjónarkerfi
Eplica er sveigjanlegt vefumsjónarkerfi sem byggir á traustum grunni
Eplica umhverfið hefur verið í þróun síðan 2001. Það byggir á stöðluðum aðferðum á borð við J2EE og N-Tier Model-View-Controller skiptingu og er einstaklega sveigjanlegt og skalanlegt.
Best þekkta notkun þess er sem undirstaða Eplica vefumsjónarkerfisins, en nú hafa verið smíðaðir yfir 400 vefir byggðir á því. Meðal grunnvirkni kerfisins er umsýsla greina, frétta, skjala og myndefnis í öflugu umsýsluviðmóti.
Einnig er til fjöldi viðbótareininga við vefumsjónarkerfið á borð við verslunarkerfi, samskiptakerfi og margvíslegar samþættingarlausnir. Allar viðbótareiningar eru fléttaðar inn í sama umsýsluviðmót og vefumsjónarkerfið sem auðveldar mjög alla vinnu við vefinn.
Sjá nánari upplýsingar á vefsvæði Eplica.
Öflugt þróunarumhverfi veflausna
Eplica umhverfið er það sem kallast Web Application Framework, þ.e. þróunarumhverfi fyrir veflægar hugbúnaðarlausnir og möguleikar þess einskorðast alls ekki við vefumsjónarkerfi.

