Stillingar.is vefþjónusta

Einstök útfærsla á aðgengismálum, rekin sem opin vefþjónusta

Stillingar.is er vefþjónusta sem er gott dæmi um það hvernig þekking okkar á tækninni annars vegar og áskorunum aðgenglegrar hönnunar hins vegar skapa nýjungar.

Stillingar.is er einföld og þægileg vefþjónusta fyrir eigendur vefsvæða sem vilja koma til móts við þarfir fólks sem á erfitt með að lesa, t.d. vegna sjónskerðingar eða lesblindu.


Grunnhugmyndin að baki Stillingar.is er að halda á einum stað utan um allar séróskir notenda varðandi útlit og framsetningu, og gera þannig rekstraraðilum vefsvæða auðvelt að koma til móts við þarfir notenda sinna með einföldum og þægilegum hætti.

Þjónustan er útfærð sem opin vefþjónusta sem er öllum aðgengileg og er alveg óháð Eplica lausnum.

Rekstur þjónustunnar er fjármagnaður með lágum mánaðarlegum áskriftargjöldum frá stærri vefsvæðum sem nýta sér þjónustunna. Vefsvæði í eigu einstaklinga, einyrkja, góðgerðasamtaka og smærri félagasamtaka geta hins vegar nýtt sér hana ókeypis.

Flash myndband í popup-glugga

Nánar má lesa um notkun þjónustunnar á vefsvæði Stillingar.is.

Samnýtt smákaka fyllt óskum

Tæknileg uppbygging þjónustunnar byggir í stuttu máli á því að óskir notenda eru skráðar í "smáköku" (e. browser cookie) útgefinni af minar.stillingar.is.

Vefsvæði sem vilja nýta sér þjónustuna gera það með einföldum HTTP samskiptum við minar.stillingar.is sem afhendir með sjálfvirkum, stöðluðum hætti innihald stillinga-smáköku viðkomandi notanda. Þannig geta ólík vefsvæði fengið lifandi aðgang að einni og sömu stillinga-smákökunni.

Ítarlegri yfirferð um tæknilega högun þjónustunnar má lesa í reynslusögu verkefnisins.


Snilldin að baki Stillingum

Það er margt við útfærsluna á Stillingum.is sem við getum hreykt okkur af og gerir þjónustuna einstaka á heimsmælikvarða:

  • Notendur þurfa aðeins að tiltaka óskir sínar einu sinni í hverjum vafra.
  • Boðið er upp á stillingarmöguleika sem taka mið af ólíkum tegundum lestrarörðugleika, en sem eru jafnframt einfaldaðir til hins ýtrasta til að auðvelt sé að forrita gagnvart þeim.
  • Skynsamleg notkun á léttum HTTP samskiptum, cache-stillingum og "smákökum", tryggir að Stillingar.is getur auðveldlega starfað undir mjög miklu álagi.
  • Einfaldar, sveigjanlegar og vel skjalaðar vefþjónustur skila upplýsingum á því formi sem óskað er; sem URL-breytum, CSS skjali eða javascript breytum.
  • Úrslitavaldið um útfærslu birtingarinnar er í höndum hvers vefsvæðis.
  • Boðið upp á einfaldan kóða fyrir javascript "hnapp" til að afrita inn á hvaða vefsíðu sem er, og þannig má nýta sér þjónustu Stillingar.is á innan við 2 mínútum.
  • Allt þjónustuviðmót gagnvart vefnotendum er í boði á mörgum tungumálum, og hægt er að bæta við nýjum tungumálum með lítilli fyrirhöfn.






litli

Þitt álit

skiptir okkur máli

Ábending, hrós eða kvörtun? Láttu okkur vita, hvað þér finnst.
Athugið: ekki er nauðsynlegt að gefa upp nafn, síma né netfang.

Til að fyrirbyggja ruslpóst:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica