Vitki - wiki samvinnukerfi

Þekkingarmiðlun í öflugu wiki kerfi

Samvinnukerfið Vitki er byggt á wiki kerfinu Confluence og er selt og þjónustað af Hugsmiðjunni. Confluence er svokallað "enterprise wiki" sem notað er í hátt í 2000 fyrirtækjum og stofnunum um allan heim.

Wiki uppbygging hentar best þegar gögn á innri vefnum eru í stöðugri þróun og áhersla er á miðlun upplýsinga og þekkingar milli starfsmanna.

Oft er litið á það sem aðalhlutverk innri vefja að miðla upplýsingum í eina átt; til starfsmanna, en með wiki lausnum má virkja starfsmenn betur og láta þá um að skrá og skapa þekkingu með þeim hætti sem við á hverju sinni.



Hvernig virkar wiki á innri vef?

Wiki kerfi byggja á því að notendur lesi ekki aðeins vefsíður heldur geti unnið jafnóðum í þeim. Wiki hentar því best þegar ætlunin er að starfsmenn noti innri vefinn til að skrásetja eigin þekkingu og miðla upplýsingum sín á milli.

Vitki-Wiki sameinar það besta úr frelsi wiki hugmyndarinnar annars vegar og kröfur nútímafyrirtækja um aðgangsstýringar, skjalavistun og margs konar viðbótarvirkni hins vegar.

Auðvelt er að skrifa texta, annað hvort í ritli sem minnir á hefðbundið ritvinnsluviðmót eða með einföldum wiki rithætti. Margir notendur geta unnið í texta sömu síðu eða bætt við athugasemdum líkt og þekkist af bloggsíðum. Kerfið heldur utan um alla breytingasögu og hægt er að sjá nákvæmlega hver breytti hverju og hvenær. Einnig er hægt að láta vaka fylgjast með ákveðnum síðum eða svæðum og fá reglulega yfirlit yfir breytingar sem hafa verið gerðar.

Með öflugum aðgangsstýringum má tilgreina nákvæmlega hverjir hafa aðgang að hvaða gögnum, bæði hvað varðar les- og skrifréttindi. Aðgangur getur verið bundinn notendahópum eða einstökum notendum, til dæmis vegna gagna sem enn eru á vinnslustigi eða sérlegra trúnaðargagna.


Fjölhæf skjalaumsýsla

Hægt er að hengja skjöl við allar síður og Vitki heldur líka utan um breytingasögu þeirra. Þannig má sjá fyrri útgáfur til dæmis ritvinnsluskjals og hægt er að setja inn athugasemdir við hverja nýja útgáfu. Öflug leit býður bæði upp á leit í textasíðum og í öllum algengustu skjalategundum, þannig að hægt er að finna allar upplýsingar á einum stað óháð því á hvaða sniði þær hafa verið unnar.

Með því að taka upp Vitka er jafnvel mögulegt að leggja af sameiginleg skráarsvæði og hætta að senda viðhengi í tölvupóstum innan fyrirtækisins!


Sameinar kosti wiki og bloggs

Wikipedia er best þekkta dæmið um vel heppnaðan þekkingarbrunn byggðan á wiki, þar sem notendur skrá upplýsingar um þau efnisþætti sem þeir hafa áhuga á og geta bætt við eða leiðrétt færslur eftir þörfum. Auk hefðbundinnar efnisflokka-uppbyggingar býður Vitki upp á einkasvæði notenda, þar sem þeir geta skráð sín hugðarefni með sams konar hætti og í bloggkerfum.

Mikilvægt er að innri vefir séu lifandi og áhugaverðir, starfstengt blogg getur verið ein leið til að stuðla að skoðanaskiptum og skrásetningu upplýsinga sem annars væri erfitt að staðsetja í efnisflokkum.







litli

Þitt álit

skiptir okkur máli

Ábending, hrós eða kvörtun? Láttu okkur vita, hvað þér finnst.
Athugið: ekki er nauðsynlegt að gefa upp nafn, síma né netfang.

Til að fyrirbyggja ruslpóst:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica