Við leitum að bakendaforriturum

Starfsauglýsing
Við leitum að metnaðarfullum og lausnamiðuðum forriturum til að vinna með okkur framúrskarandi stafrænar lausnir í krefjandi og skapandi umhverfi
Umsóknir
Umsóknarfrestur er til 20. júní
Sendu okkur umsókn og ferilskrá á starf@hugsmidjan.is
Hugsmiðjan er hönnunar- og hugbúnaðarhús sem hjálpar fyrirtækjum og stofnunum að ná árangri með nýrri tækni.
Hjá Hugsmiðjunni er ákaflega metnaðarfullt en jafnframt notalegt og afslappað andrúmsloft. Við leggjum mikla áherslu á að vera fyrsta flokks vinnustaður sem laðar að sér framúrskarandi fólk með ástríðu fyrir að skapa yfirburða stafrænar lausnir.
Við leitum að forriturum sem
- eru jákvæðir, metnaðarfullir og lausnamiðaðir
- hafa sjálfstæða og skapandi hugsun
- hafa ástríðu fyrir framúrskarandi notendaupplifun
- eiga auðvelt með samskipti og samvinnu í teymisvinnu
Hæfniskröfur
- Góð þekking á HTML, CSS og JavaScript.
- Góð þekking á Node.js, NextJS, React, og TypeScript.
- Reynsla af hönnun, rekstri og uppsetningu hugbúnaðarkerfa.
- Að minnsta kosti þriggja ára starfsreynsla.
- Reynsla af vinnslu verkefna með skýra tímalínu og framleiðsluáætlun.
- Reynsla af samskiptum við viðskiptavini.
- Þekking á öðrum forritunarumhverfum (t.d. .NET eða Python) er kostur.
- Menntun á sviði tölvunarfræði eða verkfræði er kostur en ekki krafa.
Um hvað snýst starfið?
- Vinna framúrskarandi stafrænar lausnir í samstarfi við hönnuði og viðskiptavini.
- Skipulag, hönnun og forritun í stærri hugbúnaðarverkefnum.
- Rekstur verkefna í samstarfi við viðskiptavini.
Hugsmiðjan býður
- Krefjandi og skapandi verkefni með metnaðarfullum viðskiptavinum.
- Öflug teymi sem samanstanda af fagfólki.
- Vinalegt starfsumhverfi og fjölskylduvæna starfsmannastefnu.
- Niðurgreiddan hádegismat, gott kaffi og fullan ísskáp.
Okkar leiðarljós
- Það er fátt mikilvægara en að rækta sífellt samskiptahæfileika sína. Góð samskipti drífa áfram árangur.
- Við segjum það sem við hugsum því við vitum að öflug samskipti eru lykillinn að skilvirkri teymisvinnu. Vandamál eru til þess að leysa þau.
- Við drögum forsendur og aðferðir í efa en aldrei viðleitni, ásetning eða metnað.
- Við berum virðingu fyrir tíma okkar og annarra og við erum góð í að vinna undir tímapressu; tíminn er okkar verðmætasta eign.
- Við erum vandvirk, en festumst ekki í smáatriðum.
- Ef það er ómögulegt að mæta settri dagsetningu, þá segjum við frá því tímalega. Við bíðum ekki og vonum.
- Árangursrík teymi hjálpast að; við göngum óhrædd í öll verkefni.
- Ef við gerum mistök, þá tökum við ábyrgð á þeim, lögum þau og lærum.
- Ef við sjáum að við höfum eitthvað fram að færa til að hjálpa öðrum starfsmanni þá bjóðum við fram aðstoð okkar.
- Okkur stendur ekki á sama.
Hafðu samband
Sendu okkur umsókn og ferilskrá á starf@hugsmidjan.is, ef þú telur þig vera réttu manneskjuna í starfið.
Umsóknarfrestur er til 20. júní.