Hugsmiðjan leitar að forriturum

Hugsmiðjan leitar að vefforriturum

Read in English

Hugsmiðjan er hönnunar- og hugbúnaðarhús sem hjálpar fyrirtækjum og stofnunum að ná árangri með nýrri tækni.

Hjá Hugsmiðjunni er ákaflega metnaðarfullt en jafnframt notalegt og afslappað andrúmsloft með sex tíma vinnudegi. Við leggjum mikla áherslu á að vera fyrsta flokks vinnustaður sem laðar að sér framúrskarandi fólk sem hefur ástríðu fyrir að skapa yfirburða stafrænar lausnir.

Við leitum að vefforriturum sem: 

  • Eru jákvæðir, metnaðarfullir og lausnamiðaðir
  • Hafa sjálfstæða og skapandi hugsun
  • Hafa ástríðu fyrir framúrskarandi notendaupplifun
  • Eiga auðvelt með samskipti og samvinnu í teymisvinnu


Hugsmiðjan í myndum

Hæfniskröfur:

  • Góð þekking á HTML, CSS og JavaScript
  • Góð þekking á Node.js, NextJS, React, og Typescript
  • Reynsla af vinnslu verkefna sem bera skýra tímalínu og framleiðsluáætlun
  • Reynsla af samskiptum við viðskiptavini
  • Menntun á sviði tölvunarfræði eða verkfræði er kostur en ekki krafa

Um hvað snýst starfið:

  • Útbúa framúrskarandi stafrænar lausnir í samstarfi við hönnuði og viðskiptavini
  • Vinna með öflugu teymi að stærri hugbúnaðarverkefnum

 

Hugsmiðjan býður uppá: 

  • Möguleika á sex tíma vinnudegi
  • Krefjandi og skapandi verkefni með metnaðarfullum viðskiptavinum
  • Öflug teymi sem samanstanda af fagfólki
  • Vinalegt starfsumhverfi og fjölskylduvæna starfsmannastefnu
  • Möguleiki á fjarvinnu og sveigjanleika í viðveru
  • Niðurgreiddan hádegismat, gott kaffi, og fullan ísskáp

Okkar leiðarljós

  • Það er fátt mikilvægara en að vera sífellt að rækta samskiptahæfileikana sína. Góð samskipti drífur árangur áfram
  • Við segjum það sem við hugsum því við vitum að öflug samskipti eru lykillinn að skilvirkri teymisvinnu. Vandamál eru til þess að leysa þau
  • Við drögum forsendur og aðferðir í efa en aldrei viðleitni, ásetning eða metnað
  • Við berum virðingu fyrir tíma okkar og annarra og við erum góð að vinna undir tímapressu, því tíminn er okkar verðmætasta eign
  • Við erum vandvirk, en festumst ekki í smáatriðum
  • Ef það er ómögulegt að mæta settri dagsetningu, þá segjum við frá því tímalega. Við bíðum ekki og vonum
  • Árangursrík teymi hjálpast að og við göngum óhrædd í öll verkefni
  • Ef við gerum mistök, þá tökum við ábyrgð á þeim, lögum þau og deilum þekkingunni
  • Ef við sjáum að við höfum eitthvað fram á að færa til að hjálpa öðrum starfsmanni þá bjóðum við fram aðstoð okkar
  • Okkur stendur ekki á sama

Hafðu samband

Sendu okkur umsókn og ferilskrá á starf@hugsmidjan.is, ef þú telur þig vera réttu manneskjuna í starfið.