Stærsta litla vefstofan
Samkvæmt nákvæmum mælingum okkar sjálfraAðeins um okkur
Leiðandi afl
Hugsmiðjan er stærsta litla veffyrirtækið á Íslandi og hefur verið í meirihlutaeigu starfsmanna frá stofnun.
-
Við erum hreykin af því að vera leiðandi afl í íslenskum vefiðnaði. Við erum líka stolt af elstu kennitölu íslensks veffyrirtækis: 500101-2880
-
Við innleiddum hér öld aðgengilegra vefja og höldum nú frökk fram á við með snjallvefi að leiðarljósi.
-
Helstu áherslur
Eplica
Flesta vefi setjum við upp í Eplica vefumsjónarkerfinu sem við höfum þróað í meira en áratug.
MeiraAðgengismál
Þegar aðgengi sjónskertra og blindra er tryggt finna leitarvélarnar þig líka betur.
MeiraSnjallvefir
Einn vefur fyrir allar skjástærðir. Vefurinn birtir notenda sama efnið, óháð skjástærð
MeiraStiklað á stóru í sögu okkar
2001
Fyrirtækið stofnaðHugsmiðjan tekur til starfa í húsnæði við Skúlagötuna. Starfsmenn í lok árs: 3
2002
Fyrstu Eplica vefirnirVefir fyrstu viðskiptavina líta dagsins ljós í glænýju Eplica kerfi.
2005
Flutt á SnorrabrautStarfsmenn orðnir 14 og Hugsmiðjan flytur í núverandi húsnæði.
2008
Eplica 2 kynnt til söguGott viðmót verður mun betra þegar Eplica 1.x víkur fyrir arftaka sínum.
2009
Fjárfest í poolborðiStórt skref stigið í átt að staðalímynd nördafyrirtækja.
2011
Fyrstu snjallvefirnirVið segjum skilið við sérstaka farsímavefi og stígum inn á braut snjallra vefja.
2012
Besti íslenski vefurinnOrkusalan hlýtur Íslensku vefverðlaunin fyrir vef unninn af okkur.
2013
Þú skoðar vefinn okkarÞakka þér fyrir að sýna okkur áhuga. Má bjóða þér í kaffi eða te?
Fjölbreyttur hópur
Starfsfólk Hugsmiðjunnar
Margeir Ingólfsson
Ráðgjöf & markaðsstjórn
Aka: DJ Margeir, Gluteus Maximus
margeir@hugsmidjan.is
5-500-901 / 698-6018
Vilt þú starfa hjá okkur?
Það er ennþá laus stóll hjá okkur!
Hefur þú það sem við leitum að?
Trommari sem kann að forrita
Við leitum að metnaðarfullum og snjöllum trommara sem kann að forrita í Java. Eins til tveggja ára starfsreynsla er kostur og sakar ekki að þekkja til Agile aðferðafræðinnar.
ATH! að einnig er tekið við umsóknum frá cellóleikurum, raftónlistarfólki, laglausum og fleirum.
Við bjóðum
Góðan og metnaðarfullan starfsanda
Jákvætt og hvetjandi starfsumhverfi
Virt og vel rekið fyrirtæki
Almenn skemmtilegheit
Sundlaug í nágrenninu
Fínasta kaffi og te
Ögrandi verkefni
Sultugóð laun
Poolborð
VILTU VERA MEMM?
Sendu ferilskrána til framkvæmdastjóra okkar, Ragnheiðar.
Hugað að andanum
Skapandi starfsfólk
Við erum fjölbreyttur hópur og skapandi,
hér eru til dæmis tónlistarmenn í hverju horni.
-
Stemmningin er afslöppuð og heimilisleg,
en ekki á kostnað
metnaðar og fagmennsku.
-
Í verkefnum nýtum við það besta úr Agile fræðum (Scrum og Kanban)
auk áratuga reynslu hópsins.
Höfuðstöðvar Hugsmiðjunnar eru í húsi með stórum gluggum og lofthæð sem rúmar háfleygar hugmyndir.
Hér hefur ýmislegt verið brallað í gegnum tíðina. Einu sinni voru hér saumaðir einkennisbúningar flugmanna en í dag sníðum við viðskiptavinum okkar nýja vefbúninga.
VILTU VERA MEMM?
Við erum alltaf með augun opin fyrir hæfileikaríku fólki. Ef það á við um þig er þér velkomið að senda ferilskrána til Ragnheiðar.
Látum gott af okkur leiða
Samfélagsábyrgð
Þekkingunni miðlað
Við, starfsmenn Hugsmiðjunar, erum meðvituð um mikilvægi þess að vera virkir þátttakendur í samfélaginu og nýta þekkingu okkar til þess að láta gott af okkur leiða.
Nokkrir þeirra sem við höfum styrkt




