Svona getur þú nýtt peningana betur til að selja meira

25.06.2019

Með því að nýta tæknina er hægt að fá miklu betri upplýsingar um auglýsingar á samfélagsmiðlum — upplýsingar sem hjálpa þér að ná betri árangri og spara pening.

Þegar þú notar Facebook til að dreifa auglýsingum er aðeins hálf sagan sögð. Þú vandar þig við að setja auglýsinguna upp og útbýrð markhópa til að finna fólk sem er líklegt til að kaupa vöruna þína. En hvað gerist eftir að fólk smellir á auglýsinguna?

Mögulegir viðskiptavinir eru þá komnir inn á vefinn þinn. Mögulega kaupa þeir vöruna sem þú ert að auglýsa og allir lifa hamingjusamir til æviloka. En mögulega vafra þeir um vefinn án þess að kaupa neitt og halda svo áfram með líf sitt.

Glatað tækifæri? Ekki ef þú ert að nota Facebook Pixelinn.

Facebook Pixel er kóði sem þú virkjar á vefnum þínum og safnar gögnum um notendur. Pixellinn gerir þér meðal annars kleift að fylgjast með sölutölum út frá auglýsingum á Facebook, betrumbæta auglýsingar, búa til markhópa úr notendum sem vafra um vefinn þinn og endurmarkaðssetja (remarket) vörurnar þínar eða þjónustu með þessa notendur í huga.

Þegar þú hefur virkjað Pixelinn sérðu til þess að fólk sem heimsækir vefinn þinn skilji eftir sig slóð sem þú getur notað í markaðssetningu. Höfum samt á hreinu að upplýsingarnar eru að sjálfsögðu ekki persónugreinanlegar.

Þegar þú hefur virkjað Pixelinn sérðu til þess að fólk sem heimsækir vefinn þinn skilji eftir sig slóð sem þú getur notað í markaðssetningu.

Þetta býður upp á fjölbreytta möguleika. Sem dæmi þá geturðu búið til sérstakan markhóp úr fólki sem heimsótti vefinn þinn, setti vöru í körfu en hætti af einhverjum ástæðum við að klára kaupin. Þannig geturðu til dæmis kynnt vöruna betur fyrir fólki sem hefur sýnt henni áhuga.

Þú getur búið til sérstaka markhópa úr flestum aðgerðum og undirsíðum sem vefurinn þinn býður upp á og tryggt að líklegir viðskiptavinir sjái auglýsinguna þína. Þannig hækkarðu árangurshlutfallið (conversion rate) sem skilar betri arðsemi (ROI).

Þóknun fer úr 15-30% niður í 1%

Hér má sjá raunverulegt dæmi um upplýsingar sem Pixellinn veitir þér aðgang að. Við settum upp herferð fyrir íslenskan ferðaþjónustuaðila sem eyddi samtals um 44 þúsund krónum til að selja þjónustu fyrir rúmlega fjórar milljónir. Algengt er að aðilar í ferðaþjónustu greiði um 15 til 30 prósent af sölunni til bókunaraðila. Í þessu dæmi er hlutfallið um 1 prósent.

Group-74

Hér er dæmi um annan viðskiptavin þar sem sést hvernig upplýsingar úr Pixelnum sýna kostnaðinn við hverja sölu á vöru upp á 50 þúsund krónur. 

Group-76

Í kjölfarið er svo hægt að rekja sig niður á auglýsingar hvers markhóps og sjá nákvæmlega hvaða auglýsing það er sem skilar besta árangrinum. Hér er dæmi um tvær auglýsingar þar sem önnur skilar margfalt betri árangri, ef miðað er við kostnað á hverja sölu.

Group-75

Vantar þig hjálp?

Hugsmiðjan býður upp á sérstakan pakka þar sem við hjálpum þér eða fyrirtækinu þínu frá a til ö að taka Pixelinn í notkun. Við tékkum á stöðunni, innleiðum Pixelinn ásamt því að kenna þér að nota hann. Þá bjóðum við upp á uppsetningu á mælaborði með lykiltölum þar sem hægt er að bera saman kostnað og árangur milli ólíkra miðla, svo sem Facebook, Instagram, Youtube, Google, íslenska vefmiðla o.s.frv.

Hafðu samband og við hjálpum þér að nýta fjármagnið betur til að ná betri árangri í stafrænni markaðssetningu.