Hugsmiðjan metin hæst í útboði Stafræns Íslands

Stafræn umbreyting hins opinbera
Stærsta útboð Stafræns Íslands til þessa
Hugsmiðjan var á meðal þeirra fjölmörgu fyrirtækja sem tóku þátt í útboði Stafræns Íslands á evrópska efnahagssvæðinu, sem er það stærsta og umfangsmesta sem haldið hefur verið frá upphafi verkefnisins.
Það er sérstaklega ánægjulegt að Hugsmiðjan hlaut hæstu einkunn í mati á verkefnum sínum í báðum verkefnaflokkum útboðsins, annars vegar fyrir alhliðateymi og hins vegar fyrir vefteymi. Verkefnin fólust annars vegar í útfærslu á einfölduðu skattframtali einstaklinga á Ísland.is og hins vegar í að færa umfangsmikinn vef Alþingis yfir á Ísland.is.
Rammasamningurinn er óhefðbundinn að því leyti að fyrirtæki bjóða ekki í tiltekið verkefni heldur bjóða þau fram þverfagleg teymi með sérfræðiþekkingu sem síðan taka þátt í þróun stafrænna lausna fyrir hið opinbera. Matsferlið byggði á hæfni teyma, gagnaskilum, tímaverði og kynningum á verkefnum.

„Að fá hæstu einkunn fyrir lausnir okkar í báðum flokkum útboðsins er mikil viðurkenning fyrir okkur og staðfestir ótvírætt framúrskarandi hæfni Hugmiðjunnar til að takast á við krefjandi hugbúnaðarverkefni.
Útboðið var mjög krefjandi og niðurstaðan sýnir hversu öflug íslensk hönnunar- og hugbúnaðarhús eru þegar kemur að hraða án þess að fórna gæðum lausna.“
- Ragnheiður Þorleifsdóttir, framkvæmdastjóri Hugsmiðjunnar.
Stafræn uppbygging til framtíðar
Hugsmiðjan hefur um árabil verið leiðandi á sviði stafrænna lausna og tekið þátt í uppbyggingu fjölmargra mikilvægra stafrænna kerfa fyrir almenning, stofnanir og fyrirtæki.
Nýr rammasamningur Stafræns Íslands tók formlega gildi í júní og mun leggja grunn að áframhaldandi þróun á Ísland.is og öðrum mikilvægum stafrænum innviðum hins opinbera á næstu árum. Öflugir stafrænir innviðir Íslands leggja grunn að aukinni hagræðingu og skilvirkni stjórnsýslunnar sem er mikið hagsmunamál fyrir íslenskt samfélag.

„Stafrænt Ísland hefur á síðustu árum breytt væntingum fólks til opinberrar þjónustu. Verkefnin sem fram undan eru snúast um að gera samskipti fólks og stjórnvalda einfaldari, skilvirkari og aðgengilegri. Við erum stolt af því að fá tækifæri til að leggja okkar af mörkum til þeirrar þróunar,“
- Margeir Steinar Ingólfsson, stjórnarformaður Hugsmiðjunnar.





