Þrjú gull og sjö silfur á Íslensku vefverðlaununum

27. MARS 2026
SVEF sviðið - key

Afhending Íslensku vefverðlaunanna fór fram 26. mars. Þar fengu verkefni Hugsmiðjunnar þrisvar fyrstu verðlaun í sínum flokkum og sjö silfur.

Við mættum spennt á hátíðina eftir að hafa fengið alls 21 tilnefningu fyrir 17 verkefni, en niðurstaðan kom samt skemmtilega á óvart. Við erum einkar stolt af öllum þessum verkefnum og þakklát okkar frábæru viðskiptavinum fyrir árangursríkt samstarf.

Tvöfaldur sigur hjá Kvikmyndamiðstöð Íslands

Efnis- og fréttaveita & Opinber vefur

Vefur Kvikmyndamiðstöðvar Íslands fékk tvenn gullverðlaun, sem Efnis- og fréttaveita ársins og sem Opinber vefur ársins. Á nýjum vef Kvikmyndamiðstöðvar eru tveir sjálfstæðir vefir sameinaðir í eina heildstæða tæknilausn sem nýtir styrkleika og sveigjanleika Payload CMS vefumsjónarkerfisins. Leitarvirkni og hraði eru þar stórlega bætt í nýju og notendavænu viðmóti fyrir gagnagrunn sem nær yfir fleiri en 10.000 einstaklinga og rúmlega 2.000 verkefni.

Fyrirtækjavefur – stór fyrirtæki

EFLA fékk fyrstu verðlaun fyrir Fyrirtækjavef ársins í flokki stórra fyrirtækja.

Nýir vefir EFLU á fjölmörgum tungumálum styðja við alþjóðlega starfsemi fyrirtækisins með því að miðla sérfræðiþekkingu, verkefnum og sjálfbærum lausnum á skýran og aðgengilegan hátt fyrir alþjóðlegan markað.

Ný nálgun í ferðaþjónustu hjá Key to Iceland

Silfur: Ferðaþjónustuvefur & Markaðsvefur

Key to Iceland fékk silfur í tveimur flokkum, bæði sem Ferðaþjónustuvefur ársins og Markaðsvefur ársins. Vefurinn er ný bókunarlausn sem byggir á gögnum, gervigreind og nýrri nálgun í þjónustu við ferðamenn á Íslandi. Markmiðið er að gera ferðamönnum auðveldara að skipuleggja ferðalag á Íslandi á sama tíma og íslensk fyrirtæki fá betri kjör og meiri stjórn á eigin gögnum.

Silfur: Efnis- og fréttaveita & Fyrirtækjavefur – lítil fyrirtæki

Vefur Verkfræðingafélags Íslands hlaut tvenn silfurverðlaun; sem Fyrirtækjavefur ársins í flokki lítilla fyrirtækja og sem Efnis- og fréttaveita ársins. Vefurinn gegnir lykilhlutverki í upplýsingamiðlun VFÍ til sinna félagsmanna og í þátttöku þess í umræðunni.

Íslandsbanki sópar til sín verðlaunum og viðurkenningum

Silfur: Fyrirtækjavefur – stór fyrirtæki

Vefur Íslandsbanka hlaut silfurverðlaun sem Fyrirtækjavefur ársins í flokki stórra fyrirtækja. Vefurinn er fræðslu og þjónustuaðgangur fyrir allt sem snýr að þínum fjármálum hjá Íslandsbanka. Viðskiptavinir geta flakkað á milli ytra vefs, Netbanka (Betu), vöru- og markaðstorgs, sjóðfélagavefs, greiðslumats, aðgangs- og öryggisstillinga og skoðað öll sín mál. Markmiðið er að gera dagleg fjármál og yfirsýn einfaldari og skemmtilegri. Lausnin byggir á nútímalegu viðmóti sem aðlagast ólíkum notendum.

App Íslandsbanka var líka tilnefnt en það hefur á síðasta ári fengið umfangsmiklar uppfærslur sem bæta yfirsýn, öryggi og notendaupplifun. Þar má nefna nýjan persónusniðinn heimaskjá, yfirsýn yfir útgjöld, nýjar lausnir fyrir foreldra til að fylgjast með fjármálum barna sinna og lífkenni fyrir millifærslur.

Silfur: Fyrirtækjavefur – meðalstór fyrirtæki

Vefur Ergo fékk silfur sem Fyrirtækjavefur ársins í flokki meðalstórra fyrirtækja. Vefurinn er hannaður til að hjálpa viðskiptavinum að taka upplýstar ákvarðanir um fjármögnun bíla og atvinnutækja. Þar gegnir ítarleg bílalánareiknivél lykilhlutverki ásamt fræðslu um ólíkar lánaleiðir. Ásýndin er fersk og djörf og einkennandi myndefni er áberandi.

Silfur: Tækninýting

Hönnunarkerfi Íslandsbanka hlaut silfurverðlaun sem Tækninýting ársins. Hönnunarkerfið er skalanleg stefnumótandi vara í stöðugri þróun sem skapar samræmda upplifun viðskiptavina fyrir öll vörumerki undir hatti Íslandsbanka. Íslandssjóðir fengu einnig tilnefningu fyrir tækninýtingu ársins.