Við leitum að forriturum

26. JÚNÍ 2025

Starfsauglýsing

Við leitum að metnaðarfullum og lausnamiðuðum forriturum til að vinna með okkur framúrskarandi stafrænar lausnir í krefjandi og skapandi umhverfi

Umsóknir

Umsóknarfrestur er til 10. ágúst

Sendu okkur umsókn og ferilskrá á starf@hugsmidjan.is

Hugsmiðjan er hönnunar- og hugbúnaðarhús sem hjálpar fyrirtækjum og stofnunum að ná árangri með nýrri tækni.

Hjá Hugsmiðjunni er ákaflega metnaðarfullt en jafnframt notalegt andrúmsloft. Við leggjum mikla áherslu á að vera fyrsta flokks vinnustaður sem laðar að sér fólk sem vill búa til yfirburða stafrænar lausnir.

Við leitum að forriturum sem

  • eru jákvæðir, metnaðarfullir og lausnamiðaðir
  • hafa sjálfstæða og skapandi hugsun
  • hafa ástríðu fyrir framúrskarandi notendaupplifun
  • eiga auðvelt með samskipti og samvinnu í teymisvinnu

Hæfniskröfur:

  • Góð þekking á HTML, CSS og JavaScript.
  • Góð þekking á Node.js, NextJS, React, og TypeScript.
  • Reynsla af hönnun, rekstri og uppsetningu hugbúnaðarkerfa.
  • Að minnsta kosti þriggja ára starfsreynsla.
  • Reynsla af vinnslu verkefna með skýra tímalínu og framleiðsluáætlun.
  • Reynsla af samskiptum við viðskiptavini.
  • Þekking á öðrum forritunarumhverfum (t.d. .NET eða Python) er kostur.
  • Menntun á sviði tölvunarfræði eða verkfræði er kostur en ekki krafa.

Um hvað snýst starfið?

  • Vinna framúrskarandi stafrænar lausnir í samstarfi við hönnuði og viðskiptavini.
  • Skipulag, hönnun og forritun í stærri hugbúnaðarverkefnum.
  • Rekstur verkefna í samstarfi við viðskiptavini.

Hugsmiðjan býður:

  • Krefjandi og skapandi verkefni með metnaðarfullum viðskiptavinum.
  • Öflug teymi sem samanstanda af fagfólki.
  • Vinalegt starfsumhverfi og fjölskylduvæna starfsmannastefnu.
  • Niðurgreiddan hádegismat, gott kaffi og fullan ísskáp.

Hafðu samband

Sendu okkur umsókn og ferilskrá á starf@hugsmidjan.is, ef þú telur þig vera réttu manneskjuna í starfið.

Umsóknarfrestur er til 10. ágúst.