Við leitum að vefhönnuði

Ertu skapandi vefhönnuður með ástríðu fyrir notendaupplifun og hönnun?
Umsóknir
Umsóknarfrestur er til 10. júní
Sendu okkur umsókn og ferilskrá á starf@hugsmidjan.is
Við hjá Hugsmiðjunni leitum að hönnuði sem vill skapa fallegar og notendavænar stafrænar lausnir í öflugu teymi.
Hugsmiðjan er hönnunar- og hugbúnaðarfyrirtæki sem hjálpar fyrirtækjum og stofnunum að nýta stafræna tækni til að ná árangri. Við leggjum áherslu á notendamiðaða nálgun, skapandi hugsun og öflugt samstarf.
Við leitum að hönnuði sem
- er jákvæður, metnaðarfullur og lausnamiðaður
- er með sjálfstæða og skapandi hugsun
- hefur ástríðu fyrir framúrskarandi notendaupplifun og þjónustuhönnun
- fylgist með nýjungum og best practices í UI/UX
- á auðvelt með samskipti og samvinnu í teymisvinnu
- hefur auga fyrir smáatriðum og sjónrænni útfærslu
Hæfniskröfur:
- hæfileiki til að hanna notendamiðaðar og fallegar stafrænar lausnir
- góður skilningur á notendaupplifun, flæði og aðgengismálum
- góð þekking á Figma hönnunartólinu
- góð kunnátta í að kynna hönnun og rökstyðja hugmyndir
- áhugi og þekking á hagnýtingu gervigreindartóla við greiningu og hönnun
- a.m.k. þriggja ára starfsreynsla af hönnun stafrænna lausna
- menntun og/eða reynsla sem nýtist í starfi
Önnur hagnýt reynsla:
- vörumerkjahönnun
- hreyfigrafík og/eða myndbandagerð
- ljósmyndun og/eða eftirvinnsla ljósmynda
Hvernig er að vinna hjá okkur?
Þú kemur til með að taka þátt í fjölbreyttum verkefnum þar sem þín rödd skiptir máli.
Við erum samheldið og metnaðarfullt teymi sem leggur áherslu á gott starfsumhverfi, samstarf og þróun. Við setjum fókus á verkefnin og skilum af okkur framúrskarandi niðurstöðu.
Hafðu samband
Sendu okkur umsókn og ferilskrá á starf@hugsmidjan.is, ef þú telur þig vera réttu manneskjuna í starfið.
Umsóknarfrestur er til 10. júní.


.jpg&w=3840&q=100)

.jpg&w=3840&q=100)




.jpg&w=3840&q=100)

.jpg&w=3840&q=100)


.jpg&w=3840&q=100)
.jpg&w=3840&q=100)