Sérsniðnar veflausnir

Við uppfyllum kröfur þínar og metnað

Hvers vegna?

Vel hönnuð veflausn styrkir þitt vörumerki með frábærri upplifun viðskiptavina.

Hvernig?

Með skýrri sýn, notendavænni hönnun og öflugri tækni þróum við áreiðanlegar veflausnir sem skila raunverulegum árangri.

Þannig skapa framúrskarandi hönnuðir og forritarar lausn sem allir geta verið stoltir af.

Leiðin að árangri

Viðmótshönnun og ásýnd

Hönnuðir okkar eru með nýjustu strauma í viðmótshönnun á hreinu og flétta þá saman við sína sérfræðiþekkingu á aðgengi og notendaupplifun.

Traustar tæknilegar undirstöður

Forritarar og ráðgjafar velja í samráði við þig þau grunnkerfi og tæknistakk sem hæfa verkefninu til að tryggja skilvirkni, hraða og áreiðanleika.

Langtíma samband

Eftir að veflausn er komin í rekstur sinnum við áframhaldandi þróun hennar og sjáum til þess að hún uppfylli síbreytilegar kröfur.

Af hverju skiptir þetta máli?

Veflausnir verða sífellt mikilvægari sem fyrsti snertiflötur viðskiptavina við þig. Upplifun þeirra af þægindum og skilvirkni skiptir því lykilmáli.

Vel hönnuð veflausn styður við trúverðugleika þinn og þar með öll viðskipti.

Fyrir okkur skipti miklu máli við þróun á nýjum vef sveitarfélagsins að eiga í góðum og reglulegum samskiptum við okkar þjónustuaðila, fá trausta og faglega ráðgjöf og að verkefnin væru unnin markvisst og skipulega.

Þetta gekk allt saman eftir og þjónusta Hugsmiðjunnar stóðst okkar væntingar. Lykilatriði er svo auðvitað að tíma- og kostnaðaráætlanir hafa í öllum tilvikum staðist og erum við mjög ánægð með útkomuna.

Jón Þór Kristjánsson – forstöðumaður þjónustu og þróunar hjá Akureyrarbæ