Akureyri

Fjöldi undirvefja sameinaðir í einni tæknilausn
Þjónusta
Greining, vefhönnun, stafræn ásýnd, notendaupplifun (UX), forritun, kvikun, efnishögun, ljósmyndun
Um verkefnið
Nýr vefur Akureyrarbæjar er þægilegur í notkun og vinalegur í viðmóti. Skýrt veftré byggir á sérkennum bæjarfélagsins og umsýsla undirvefja er leyst með hnitmiðuðum hætti.
Markmið
Aðalvefur bæjarfélagsins var orðinn úr sér vaxinn og erfiður í notkun, með efni sem svaraði illa nútímakröfum um snjalltækjanotkun. Aðskildir vefir stofnana, skóla og leikskóla í mörgum mismunandi uppsetningum voru stór áskorun, með hamlandi flækjustigi varðandi rekstur og þjónustu.
Því var lagt upp með að búa til nýjan vef sem kæmi betur á framfæri sérkennum bæjarins og væri þægilegur í notkun fyrir bæði heimafólk og gesti. Nýtt vefumhverfi átti líka að rúma undirvefi Akureyrar og samnýta þannig tæknihögun og viðmót.
Sérkenni á þaulreyndum grunni
Allt vefskipulag var endurskoðað; fyrst lauslega flokkað á vinnustofum og síðan útfært nánar af sérfræðingum Hugsmiðjunnar. Horft var til reynslu annarra og ákveðið að hafa samráð við Reykjavíkurborg um að byggja á sömu grunnnálgun í uppbyggingu.
Með því að birta veftré og valkosti smám saman er notendum gert auðveldara að hafa yfirsýn yfir viðfangsefnið sem þeir eru að skoða. Þannig verður líka auðveldara að birta vefinn í öllum skjástærðum.
Horft var til sérkenna Akureyrar, til dæmis með því að vinna með höfuðflokkinn „Frítíma“ fyrir viðfangsefni sem önnur sveitarfélög hafa kallað „Mannlíf“.
Sjálfstæðir vefir í samnýttu kerfi
Styrkleikar Payload vefumsjónarkerfisins voru nýttir til að setja upp umgjörð með sjálfstæðum vefsvæðum undir grunnléninu akureyri.is. Þessi vefsvæði samnýta virknieiningar og stílreglur, en hægt er að velja útlitsþema fyrir einstaka vefi eða milliforsíður.
Kerfisnotendur eru tengdir við undirvefi eða vefhluta og mögulegt er að opna fyrir samnýtingu á afmörkuðum hlutum skráarkerfis – til dæmis þannig að allir undirvefir geta nýtt sameiginlegan myndabanka. Í rekstri eru vef- og ritstjórar Akureyrar sjálfbjarga með allt utanumhald um notendur og undirvefi án aðkomu Hugsmiðjunnar.
Litríkt og kunnuglegt
Unnin var ný stafræn ásýnd fyrir Akureyri, þar sem litir eru sóttir í afmælisútgáfu af skjaldarmerki bæjarins til að bæta við fyrirliggjandi bláa grunnliti. Hver höfuðflokkur vefsins hefur sinn einkennislit.
Mikil vinna var lögð í efnisljósmyndun sem fór fram á Akureyri með þátttöku bæjarbúa. Afraksturinn varð veglegur myndabanki með kunnuglegum andlitum, enda hefur það mikið að segja fyrir heildarupplifunina að myndefnið sé af fólkinu á staðnum.
Ljósmyndir
Til að fanga raunverulegan anda Akureyrar sendum við okkar bestu ljósmyndara í snarpa myndatökuferð norður. Undir leiðsögn frá bænum brunuðu þær gegnum samfélagið á mettíma og tóku myndir af öllu frá íþrótta- og félagslífi til iðandi atvinnulífs. Afurðin er frábær innsýn í daglegt líf sem styrkir alla upplifun af vefnum margfalt meira en staðlaður myndabanki gæti nokkurn tíma gert.
Niðurstaða
Nýja veflausnin hefur fengið mjög góðar viðtökur og þar skipta lykilmáli vönduð greiningarvinna og metnaðarfull hönnun. Samstarfið gekk mjög vel og verkið var vel undirbúið af hálfu Akureyrar. Vefstjórar Akureyrar lyftu grettistaki í yfirferð, tiltekt og einföldun á öllu efni gamla vefsins, byggt á nýju vefskipulagi.
Við opnun voru undirvefirnir 5, en stefnt er að því að þeir verði í heildina rúmlega 20 og nokkrir þeirra eru í smíðum. Vefstjórar Akureyrar eru sjálfbjarga við allt utanumhald um notendur og undirvefi, þannig að þörf fyrir rekstrarþjónustu Hugsmiðjunnar hefur reynst lítil sem engin.
Lykilatriði að tíma- og kostnaðaráætlanir hafa í öllum tilvikum staðist

Fyrir okkur skipti miklu máli við þróun á nýjum vef sveitarfélagsins að eiga í góðum og reglulegum samskiptum við okkar þjónustuaðila, fá trausta og faglega ráðgjöf og að verkefnin væru unnin markvisst og skipulega.
Þetta gekk allt saman eftir og þjónusta Hugsmiðjunnar stóðst okkar væntingar. Lykilatriði er svo auðvitað að tíma- og kostnaðaráætlanir hafa í öllum tilvikum staðist og erum við mjög ánægð með útkomuna.
Jón Þór Kristjánsson – forstöðumaður þjónustu og þróunar hjá Akureyrarbæ




























