Apótekarinn

Vefverslun í loftið á mettíma

Þjónusta

Greining, vefhönnun, stafræn ásýnd, notendaupplifun (UX), forritun, kvikun, efnishögun, vefverslun

Um verkefnið

Nýr vefur Apótekarans er mikilvægur hluti af nýju vörumerki Apótekarans sem varð til í kjölfar sameiningar apóteka í eigu Lyf og heilsu. Við tókum sprettinn með Apótekaranum og settum upp nýja og glæsilega vefverslun á mettíma.

Nýr vefur með umfangsmikilli fræðslu og vefverslun er í senn notendavænn, lifandi og skemmtilegur.

Vefurinn kemur nýju vörumerki Apótekarans vel til skila og er mikilvægur hlekkur í markaðsstarfi fyrirtækisins. Hann býður upp á góða tengingu við samfélagsmiðla og uppsetningu á lifandi söludrifnum lendingarsíðum fyrir markaðsherferðir og tilboðsdaga.

Stafræn ásýnd

HN markaðssamskipti sá um endurmörkun vörumerkisins og það var í okkar höndum að hanna stafræna ásýnd.

Apótekarinn fékk nýja einkennisliti með djúpan bláan tón og blátóna skala. Snyrtivörur fá sérstakt þema á vefnum, brúnan tón sem hefur það markmið að halda utan um vel þekkt alþjóðleg snyrtivörumerki.

Niðurstaðan er falleg og nútímaleg ásýnd sem leggur áherslu á upplifun og þarfir notenda.

Fagmennska og farsælt samstarf

Nýr vefur og vefverslun voru þróuð í samstarfi við Hugsmiðjuna með það að markmiði að endurspegla sameinað vörumerki Apótekarans. Verkefnið var unnið á methraða þar sem mikil eftirvænting var eftir því að kynna nýtt vörumerki með nýja stefnu og söluáherslu.

Hugsmiðjan nálgaðist verkefnið af mikilli fagmennsku og þekkingu og lagði áherslu á góða og einfalda upplifun viðskiptavina þar sem sala og fræðsla haldast í hendur.

Edda Hermannsdóttir – forstjóri Lyf og heilsu

Einfalt kaupferli og heilsutengd fræðsla

Vefurinn er hannaður til að styðja vel við markaðsstarf Apótekarans með krossölu og tengingu við samfélagsmiðla.

Á vefnum má byggja upp síður sem gera það mögulegt að setja saman vöruspjöld og lifandi ritstýrt efni, myndir og texta frá lyfjafræðingum, sérfræðingum eða áhrifavöldum.

Apótekarinn vill færa viðskiptavini nær þeirri sérfræðiþekkingu sem býr hjá starfsfólkinu og gera faglega ráðgjöf aðgengilega hvar og hvenær sem hennar er þörf.

Notandi getur keypt húð- og snyrtivörur og lyfseðilsskyld lyf fyrir sig og börnin sín, allt í sömu körfu og kaupflæði, sótt í næsta apótek eða fengið sent heim.

Forritun og vefþjónustutengingar

Nýr vefur Apótekarans er settur upp í Payload CMS vefumsjónarkerfinu þar sem við nýtum sveigjanleika kerfisins til að tengja vefverslunina beint við Navision birgðakerfi. Þannig flæða vörur sjálfkrafa inn í vefverslun með myndum, texta og verði, sem sparar handavinnu fyrir vefstjóra.

Það er einfalt að stilla upp og stýra tilboðum, vefumsjónarkerfið sækir afslætti úr birgðakerfinu og stillir upp síum í vefversluninni.

Vefverslunin styður við ferðalag viðskiptavina í vöruleit með tillögum að svipuðum vörum, sem auðveldar leitina og styður við sölu á náttúrlegan hátt.