Sjúkraliðafélag Íslands

Sannkallaður burðarás í heilbrigðisþjónustu landsins

Þjónusta

Vefhönnun, notendaupplifun (UX), efnishögun, forritun

Um verkefnið

Nýr vefur Sjúkraliðafélags Íslands er traust og aðgengileg gátt fyrir sjúkraliða. Félagið er bæði stéttarfélag og fagfélag sem stendur vörð um hagsmuni sjúkraliða, eflir fagið og tekur virkan þátt í mótun stefnu í heilbrigðis- og velferðarmálum á Íslandi.

Ljósmyndir af sjúkraliðum við störf gegna lykilhlutverki í ásýndinni

Markmið

Markmið með nýjum vef var að auðvelda lesendum að finna mikilvægar upplýsingar, óháð tæknikunnáttu eða aldri. Sérstök áhersla var lögð á að auðvelda félagsmönnum að finna upplýsingar um fjölbreytta þjónustu félagsins og gögn tengd kjaramálum.

Lagt var upp með að byggja nýtt veftré sem styddi betur við skilgreindar notendasögur og leiði þannig notendur á réttan stað fyrir ólíkar þarfir.

Niðurstaða

Nýr vefur endurspeglar sérþekkingu og daglegan veruleika stéttarinnar og styður bæði við dagleg störf og framtíðarsýn sjúkraliðafélagsins. Hann er byggður upp sem lifandi efnis- og fréttaveita sem upplýsir og tengir saman helstu markhópa – allt frá starfandi sjúkraliðum og nemum til fjölmiðla og samstarfsaðila – og leiðir notendur fljótt að því sem skiptir mestu máli.

Eitt af lykilmarkmiðum verkefnisins var að gera upplýsingar um laun, réttindi, fríðindi og endurmenntun hnitmiðaðar og aðgengilegar, sérstaklega í snjallsímum. Það er meðal annars gert með vönduðu skipulagi aðalvalmyndar – auk þess sem milliforsíður og aðrar yfirlitssíður gefa skýra yfirsýn til að leiða notendur rétta leið.

Félagið á til gott safn myndefnis af sjúkraliðum við störf og umgjörð vefsins miðast við að þær ljósmyndir fái að njóta sín. Vönduð efnisljósmyndun skiptir afskaplega miklu máli þegar kemur að því að skapa trúverðugleika og traust, sérstaklega þegar mikilvægustu markhóparnir finna þar tengingar við sinn veruleika.

Verkefnið vannst hratt og örugglega í góðri samvinnu við Sjúkraliðafélagið og afraksturinn er hlýlegur, nútímalegur og fræðandi vefur.