Verkfræðingafélag Íslands

Verkfræðingafélag Íslands
Þjónusta
Vefhönnun, notendaupplifun/UX, forritun, efnishögun
Um verkefnið
Verkfræðingafélag Íslands á sér rúmlega 100 ára sögu og gegnir mikilvægu hlutverki í hagsmunabaráttu og miðlun þekkingar. Nýr og nútímalegur vefur félagsins undirstrikar fjölbreyttan starfsvettvang félagsmanna með ljósmyndum af nýlegum verkefnum í samspili við sögulegar heimildir.
Markmið
Vefurinn endurspeglar tvíþætt hlutverk VFÍ sem fagfélag fyrir verkfræðinga og tæknifræðinga, með yfir aldarlanga sögu og virkt hlutverk í fagumræðu samfélagsins.
Lögð var áhersla á fagumræðuna og skýrt upplýsingaflæði sem þjónar ólíkum markhópum. Fréttir, greinar, ritrýndar faggreinar, tilkynningar og fræðsluefni mynda samfellda heild sem styður faglega þróun, kjaramál og virka þátttöku félagsmanna.



