Visit Húsavík

Visit Húsavík
Þjónusta
Greining, vefhönnun, stafræn ásýnd, notendaupplifun (UX), forritun, kvikun, efnishögun
Um verkefnið
Visit Húsavík er áfangastaðavefur sem var hannaður til að gefa skýra og aðgengilega mynd af öllu því sem Húsavík hefur upp á að bjóða. Markmiðið var að skapa nútímalegan vef sem fangar stemninguna í bænum og nýtist jafnt ferðamönnum og heimamönnum.
Húsavík er þekkt fyrir hvalaskoðun og magnaða náttúru en líka fyrir hlýlegt samfélag og sterka sérstöðu. Nýi vefurinn átti að gera þessa eiginleika sýnilega á einfaldan og aðgengilegan hátt, veita góða yfirsýn yfir upplifanir, viðburði og þjónustu og vera traustur upplýsingavettvangur fyrir bæði gesti og þá sem hafa áhuga á að búa í „hvalahöfuðborg Íslands“.
Lýsing
Eldri vefur Visit Húsavík var orðinn úr sér vaxinn og endurspeglaði ekki lengur að fullu þá upplifun, stemningu og fjölbreytni sem Húsavík hefur upp á að bjóða. Um leið var orðið ljóst hversu mikilvægt það er að hafa sameiginlega, nútímalega veflausn sem miðlæga upplýsingagátt fyrir ferðaþjónustu, viðburði og samfélagið.
Þetta skipti máli vegna þess að Húsavík stendur frammi fyrir auknum áhuga ferðamanna og samkeppni annarra áfangastaða. Nauðsynlegt var að hafa sterkan stafrænan vettvang sem:
- Laðar ferðamenn að bænum
- Styður við ferðaþjónustuaðila á svæðinu
- Skapar sameiginlegan upplýsingapunkt fyrir samfélagið
Myndræn frásögn og stemning
Sterkt myndefni var lykilatriði. Visit Húsavík lagði til vandaðar ljósmyndir sem Hugsmiðjan nýtti til að byggja upp hlýja, manneskjulega og aðlaðandi frásögn. Vefurinn tekur sig ekki of alvarlega, heldur býður notendum að skoða, uppgötva og láta heillast.
Notendur á staðnum í forgrunni
Ein mikilvægasta forsendan var að vefurinn nýttist ekki aðeins þeim sem eru að skipuleggja ferð, heldur líka ferðamönnum sem eru komnir á svæðið. Því var lögð rík áhersla á frábæra upplifun í snjalltækjum, hraðan aðgang að nauðsynlegum upplýsingum og sveigjanleika til að breyta ferðaáætlunum á staðnum.
Sérstök áhersla var lögð á tengsl Húsavíkur við Demantshringinn. Hannað var gagnvirkt kort þar sem notendur geta smellt á helstu áfangastaði – Ásbyrgi, Goðafoss, Mývatn og Dettifoss – og séð akstursfjarlægðir frá Húsavík. Þetta styrkir stöðu bæjarins sem miðpunkt ferðalaga á Norðurlandi.
Viðburðir sem lifandi hluti vefsins
Í ferlinu varð ljóst hversu mikilvægt það er að hafa virka viðburðaskrá. Lausnin sem varð til gerir hverjum sem er kleift að senda inn viðburð sem vefstjóri getur samþykkt með einföldum hætti. Þannig verður vefurinn lifandi vettvangur fyrir samfélagið – ekki bara kyrrstæð markaðssíða.
Markmið
Markmiðið var að skapa aðlaðandi og mun sterkari stafræna ásýnd fyrir Húsavík, sem bætir upplýsingagjöf og notendaupplifun. Vefurinn á að vekja áhuga fólks á Húsavík sem áfangastað en einnig að hjálpa því að taka næsta skref og heimsækja staðinn. Þannig er stutt við kynningu Húsavíkur sem heilsársáfangastaðar.
Niðurstaða
Lokaútkoman er skemmtilegur, lifandi og aðgengilegur markaðsvefur sem:
- Styður markaðssetningu áfangastaðarins allt árið
- Eykur sýnileika upplifana, viðburða og þjónustu
- Gerir auðvelt að finna hvað er í boði að gera og hvar er hægt að gista
Vefurinn þjónar ólíkum markhópum með skýru flæði og aðlögun eftir tungumálum. Hann leggur grunn að langtímauppbyggingu og getur vaxið með metnaði samfélagsins.
Það var okkar gæfuspor að velja Hugsmiðjuna.

Á síðastliðnu ári var ákveðið að setja allt púðrið í nýja vel fúnkerandi heimasíðu og nokkrir möguleikar skoðaðir vandlega áður en Hugsmiðjan var fyrir valinu. Frá upphafi hefur það samstarf verið meiriháttar og allt ferlið til mikillar fyrirmyndar. Það er sagt að í upphafi skal endinn skoða og það reyndist mjög farsælt og gott að hafa hönnunarskjölin til viðmiðunar í allri vinnu sem á eftir fylgdi og gerir enn.
Fagmennskan hjá starfsfólki Hugsmiðjunnar var aðdáunarverð og fyrir okkur sem komu að þessu starfi með þeim hefur þetta verið mjög lærdómsríkt og gott veganesti í áframhaldandi vinnu, ekki bara við heimasíðuna heldur allt sem við tökum okkur fyrir hendur
Helga Björg Sigurðardóttir - Stjórnarformaður Visit Húsavík








