Key to Iceland

Snjöll bókunarlausn fyrir íslenskan markað

Þjónustur

Vefhönnun, Notendaupplifun, Tæknileg þróun, Gervigreind

Um verkefnið

Key to Iceland varð til út frá einfaldri hugsjón: að skapa íslenska bókunarlausn sem styður við heimamenn, styrkir ferðaþjónustuna og hvetur til ábyrgrar ferðaupplifunar. Í samstarfi við Hugsmiðjuna hófst vegferðin að þróun á gagnadrifnu markaðstorgi fyrir íslenska ferðaþjónustu, fyrsta sinnar tegundar hér á landi. Veflausnin sameinar nútímalega hönnun, gagnsæi og skýra framtíðarsýn um sjálfbæra ferðaþjónustu.

Ljósmyndun eftir Rán Bjargar

Margar af ljósmyndunum á Key to Iceland eru eftir Rán Bjargar, verðlaunaðan íslenskan ljósmyndara sem er þekkt fyrir landslags- og ferðaljósmyndun. Myndirnar hennar segja sögur — þær fanga stemningu staða og augnablik á náttúrulegan hátt og leyfa náttúrunni sjálfri að njóta sín.

Við völdum að vinna með Rán vegna þess að stíll hennar passar einstaklega vel við anda Key to Iceland. Myndirnar eru einlægar og sýna víðáttumikið landslag Íslands á áhrifaríkan hátt.

Key to Iceland myndasafn

Rán Bjargar

Rán Bjargar

Rán Bjargar

Rán Bjargar

Rán Bjargar

Rán Bjargar

Rán Bjargar

Mörkun sem er bæði sterk og hógvær

Öll branding vinna (mörkun) var unnin af Hugsmiðjunni. Mörkunin byggir á skörpum línum og litaflötum í lifandi samspili við ljósmyndir. Vörumerkið fyrir Key to Iceland býður upp á mikinn sveigjanleika, meðal annars í leik með lykilformið sem falið er í heitinu og Norðurstjörnuna sem vísar okkur leið. Afraksturinn er spennandi brand sem nýtist í ótal útfærslum.

Innsýn í ferla

Ferlið

Hvernig má nýta tækni til að skapa einstaka ferðaupplifun án þess að ganga á náttúru og menningu Íslands? Hugsmiðjan starfaði í nánu samstarfi við teymið hjá Key to Iceland að því að skilja sýnina, metnaðinn og þarfirnar sem liggja að baki verkefninu. Í sameiginlegum vinnustofum var þessi hugsun mótuð í stafræna upplifun sem er einföld, skýr og þægileg í notkun.

Við höfðum sérstaklega í huga ferðamenn sem vilja ferðast á eigin forsendum og finna tengingu við staðinn. Hvort sem það þýðir ævintýri, kyrrð eða eitthvað þar á milli. Um leið skoðuðum við hvernig bókunarferlið gæti betur stutt við smærri ferðaþjónustuaðila og gert þeim auðveldara að ná til fólks. Smám saman mótaðist skýr mynd af vefnum sjálfum: hlýr og stílhreinn í framsetningu, hannaður með innblástri frá íslenskri náttúru, fólki og samfélagi.

Tæknileg nálgun

Meginmarkmið Hugsmiðjunnar var að þróa sveigjanlegt bókunarkerfi sem hentar smáum og meðalstórum gististöðum með skýru verðlagi, einföldu utanumhaldi og engum földum gjöldum. Payload vefumsjónarkerfið gerði kleift að sameina myndræna frásögn við tæknilegan sveigjanleika og möguleikum á framtíðarþróun í huga. Þar á meðal möguleika á samþættingu flug-, bíla- og afþreyingarþjónustu.

Farsælt og ánægjulegt samstarf

Samstarf okkar við Hugsmiðjuna er mjög farsælt. Teymið sýndi fram á fagmennsku frá upphafi. Þau nálguðust verkefnið af skýrleika og lausnamiðun, héldu góðum samskiptum á öllum stigum og tryggðu að allar þarfir væru skilgreindar og uppfylltar á skilvirkan hátt. Samvinna við teymið einkenndist af áreiðanleika, frumkvæði og jákvæðni. Þau sýndu sveigjanleika þegar breytingar komu upp og leystu öll tæknileg atriði af fagmennsku og skjótleika. Ég mæli eindregið með þessu teymi fyrir sambærileg verkefni, hvort sem um er að ræða þróun nýrra lausna eða endurhönnun á flóknum kerfum.

Georg Haraldsson - framkvæmdastjóri Key to Iceland